Öflugra samstarf um öryggi mikilvægra neðansjávarinnviða

19.11.24 | Fréttir
Nordic and Baltic Ministers of Digitalisation
Ljósmyndari
Samuel Polsak / Regeringskanseliet Sverige

Ingrid Zetterman, innviða- og ESB-ráðherra, Álandseyjum, Inga Bērziņa, ráðherra snjallrar stjórnsýslu og byggðamála, Lettlandi, Liisa-Ly Pakosta, ráðherra dómsmála og stafrænna málefna, Eistlandi, Erik Slottner, ráðherra opinberrar stjórnsýslu, Svíþjóð, Karen Ellemann, framkvæmdastjóri  Norrænu ráðherranefndarinnar, Anna-Kaisa Ikonen, sveitastjórnaráðherra, Finnlandi,  Caroline Stage Olsen, ráðherra stafrænna málefna, Danmörku. 

 

Nýleg atvik á Eystrasalti sýna mikilvægi þess að efla öryggi í tengslum við sæstrengi. Á fundi sem haldinn var fyrir skömmu í Stokkhólmi lögðu ráðherrar stafvæðingarmála í norrænu löndunum og Eystrasaltslöndunum grunn að auknu samstarfi um mikilvæga neðansjávarinnviði.

Í sameiginlegri yfirlýsingu ráðherranna segir að neðansjávarinnviðir vegna rafrænna fjarskipta teljist til mikilvægra innviða og sýni meðal annars mikilvægi sameiginlegrar nálgunar norrænu og baltnesku landanna þegar kemur að samstarfinu við ESB og NATO.

„Öruggir stafrænir innviðir eru forsenda fyrir samkeppnishæfi landa okkar og nauðsynlegir til að uppfylla þarfir landanna þegar kemur að rafrænum samskiptum og aðgengi að stafrænni þjónustu. Öflug og umfangsmikil kerfi sæstrengja skipta sköpum á ólgu- og óvissutímum,“ sagði Erik Slottner, ráðherra opinberrar stjórnsýslu og stafvæðingar í Svíþjóð.

Öflug og umfangsmikil kerfi sæstrengja skipta sköpum á ólgu- og óvissutímum

Erik Slottner, ráðherra opinberrar stjórnsýslu og stafvæðingar í Svíþjóð

Aukin samvinna Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna stuðlar að auknu öryggi á svæðinu og uppfyllingu framtíðarsýnar Norrænu ráðherranefndarinnar um að svæðið verði það samþættasta í heimi árið 2030 í stafrænu tilliti. Karen Ellemann, framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar, segir hina sameiginlegu yfirlýsingu gott dæmi um það hvernig við eflum viðnámsþrótt á svæðinu með því að vinna saman. 

„Við erum samþætt svæði og erum því mjög háð hvert öðru. Það styrkir okkur. Að sama skapi getur það veikt okkur ef við nálgumst málin ekki sem heildstætt svæði. Norræna ráðherranefndin mun spýta í lófana í því verkefni sínu að leiða saman hlutaðeigandi aðila þegar kemur að viðnámsþrótti og skapa vettvang fyrir pólitískar viðræður og samstarf,“ sagði Ellemann. 

Norræna ráðherranefndin mun spýta í lófana í því verkefni sínu að leiða saman hlutaðeigandi aðila þegar kemur að viðnámsþrótti og skapa vettvang fyrir pólitískar viðræður og samstarf

Karen Ellemann, framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar

Með yfirlýsingunni lýsir ráðherranefndin stuðningi við sameiginlega yfirlýsingu frá New York um öryggi og viðnámsþol sæstrengja í stafvæddum heimi, „New York Joint Statement on the Security and Resilience of Undersea Cables in a Globally Digitalized World“, þar sem sett eru fram alþjóðleg viðmið til að tryggja að fjarskiptainnviðir neðansjávar séu öruggir, traustir, sjálfbærir og viðnámsþolnir.