Ónæmir ofursýklar: Norðurlöndin vinna saman gegn auknu sýklalyfjaónæmi

11.11.24 | Fréttir
Ljósmyndari
norden.org
Ýmsar ráðherranefndir efla nú samstarf sitt með heildrænni „One Health“ nálgun til að takast á við sýklalyfjaónæmi með samstarfi heilbrigðis-, félagsmála-, matvæla-, landbúnaðar- og umhverfisyfirvalda á Norðurlöndum.

Í dag eru sýklalyf notuð á mörgum ólíkum sviðum – fyrir allt frá meðferð mannsjúkdóma til matvælaframleiðslu. Um leið fer sýklalyfjaónæmi vaxandi. Oft er talað um að minnka þurfi notkun sýklalyfja en við þurfum einnig að geta meðhöndlað sýkingar. Virk sýklalyf eru mikilvæg heilbrigði manna og dýra, en einnig umhverfinu.

Við stöndum nú þegar frammi fyrir áskorunum í heilbrigðiskerfinu vegna sýkla sem eru ónæmir fyrir sýklalyfjum og því miður er þess vænst að vandamálið verði enn stærra í framtíðinni ef ekkert er að gert. Við þurfum að vinna saman á alþjóðavettvangi og einnig á Norðurlöndum, því ónæmið virðir ekki landamæri. Ég hef sjálf tekið þátt í því að hefja norrænt samstarf á þessu sviði og ég fagna því að við höfum nú í sameiningu ákveðið að efla aðgerðir okkar til að við í Danmörku og öðrum Norðurlöndum verðum vel í stakk búin til að takast á við vaxandi ógn ónæmra sýkla.

– Sophie Løhde, innanríkis- og heilbrigðisráðherra Danmerkur

Ein stærsta heilbrigðisógnin sem steðjar að heimsbyggðinni

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin, WHO, hefur flokkað sýklalyfjaónæmi sem eina stærstu heilbrigðisógnina sem steðjar að heimsbyggðinni í dag. Framkvæmdastjórn ESB telur hana vera eina af þremur stærstu heilbrigðisógnunum og Sameinuðu þjóðirnar samþykktu á allsherjarþingi um sýklalyfjaónæmi í september yfirlýsingu um hvernig alþjóðlegt samstarf eigi að fara fram í framtíðinni.

Mikilvægi norræns innkaupalíkans

Í apríl komust norrænu félagsmála- og heilbrigðisráðherrarnir að samkomulagi um að efla samstarf um sýklalyfjaónæmi og vinna frekar að því að skapa norrænt líkan sem meðal annars tryggir greiðslur til fyrirtækja sem selja sýklalyf.

Nú hefur sérfræðingahópur verið settur á laggirnar á þessu sviði, þvert á norrænar stofnanir, sem hefur það verkefni að útbúa tillögu að norrænu líkani til að tryggja að gang að virkum sýklalyfjum og hvernig norrænu löndin skuli vinna að þessu máli í framtíðinni.

Skertur aðgangur að sýklalyfjum er raunveruleiki í öllum norrænu löndunum, að miklu leyti vegna smæðar markaða landanna. En með þeirri vinnu sem nú er í gangi að því að skapa nánara samstarf vonumst við til að geta skapa betri skilyrði fyrir aukinn aðgang að sýklalyfjum.

– Jakob Forssmed, félagsmálaráðherra Svíþjóðar

Búast má við yfirlýsingu 25. nóvember 2024 samtímis norrænni ráðstefnu sérfræðinga á sviðinu, þar sem embættismenn, vísindamenn og framleiðendur munu koma saman til að tryggja aðgang að sýklalyfjum á Norðurlöndum. 

Nánari upplýsingar

Tengiliður