Samuel Engblom verður forstjóri Norrænu velferðarmiðstöðvarinnar

13.04.26 | Fréttir
Samuel Engblom utvald till ny direktör på Nordens välfärdscenter
Ljósmyndari
Stina Gränfors
Samuel Engblom hefur gegnt ýmsum leiðtogahlutverkum á sviðum sem tengjast rannsóknum, stjórnmálum og opinberri stjórnsýslu og hefur mikla þekkingu á norræna velferðarkerfinu.

Norræna velferðarmiðstöðin er stofnun á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar sem vinnur að rannsóknum og þróun á velferðarsviði. Miðstöðin gegnir hlutverki vettvangs fyrir norrænt samstarf, safnar saman sérfræðiþekkingu og veitir stjórnvöldum og stefnumótendum innblástur til að nýta þekkingu í raunhæfar lausnir sem efla velferð um öll Norðurlönd. Stofnunin fær nú nýjan forstjóra og er ráðningarferlinu lokið.

Samuel Engblom hlakkar til að hefja störf:

„Ég er fullur eftirvæntingar og hlakka til að taka við starfi forstjóra Norrænu velferðarmiðstöðvarinnar. Miðstöðin gegnir mikilvægu hlutverki við að efla samstarf og miðlun þekkingar um velferðarmál á milli norrænu landanna. Ég vil vinna að því að Norræna velferðarmiðstöðin haldi áfram að hagnýta rannsóknir, ekki síst með því að finna nýjar leiðir til að miðla niðurstöðum rannsókna þannig að þær gagnist við stefnumótun.“

- Samuel Engblom, tilvonandi forstjóri Norrænu velferðarmiðstöðvarinnar

Reyndur leiðtogi á sviði rannsókna, stjórnmála og stjórnsýslu

Samuel Engblom býr yfir mikilli og góðri reynslu af rannsóknum, stjórnun opinberra stofnana og vinnumarkaðsstefnu og er því vel í stakk búinn að stýra Norrænu velferðarmiðstöðinni. Hann er nú starfsmannastjóri og staðgengill umboðsmanns gegn mismunun í Svíþjóð þar sem hann ber ábyrgð á gerð starfsáætlunar, alþjóðamálum og stjórnarstörfum.

Karen Ellemann framkvæmdastjóri býður Engblom velkominn:

„Norræna velferðarmiðstöðin er afar mikilvæg stofnun fyrir framtíð velferðar á Norðurlöndum. Ég hlakka til að vinna með Samuel Engblom að því að þróa áfram norræn velferðarmál í þágu sjálfbærrar framtíðar.

- Karen Ellemann, framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar

Tekur við keflinu af Evu Franzén

Samuel Engblom hefur störf þann 1. ágúst 2026.

Hann tekur við keflinu af Evu Franzén sem hefur stýrt stofnuninni í átta ár. Norræna ráðherranefndin þakkar Evu Franzén fyrir elju sína, þekkingu og skýra stefnumörgun sem hefur átt stóran þátt í því að gera Norrænu velferðarmiðstöðina að lykilaðila á sviði velferðarmála á Norðurlöndum og aukið sýnileika hinna mikilvægu niðurstaðna stofnunarinnar.