Sendið inn tillögur að tilnefningum til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2026

02.02.26 | Fréttir
Nordisk Råds miljopris 2026
Ljósmyndari
Getty Images

Umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs beina kastljósinu að verkefnum sem fræða börn og ungmenni í umhverfis- og loftslagsmálum.

Frá og með deginum í dag og fram til 29. apríl getur þú sent inn tillögur að tilnefningum til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs. Í ár er kastljósinu beint að verkefnum sem fræða börn og ungmenni um umhverfis- og loftslagsmál.

Í ár verða umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs veitt aðila sem lagt hefur eitthvað sérstakt af mörkum til að tryggja að börn okkar og ungmenni séu vel í stakk búin til að skilja og bregðast við þeim ógnum sem loftslagsbreytingar og hnignun líffjölbreytni fela í sér.

„Það eru börnin okkar sem munu þurfa að búa við óafturkræfar breytingar í framtíðinni. Þess vegna er ekki aðeins mikilvægt að hlusta á þau. Þau þurfa einnig að búa yfir þekkingu og hæfni til að geta haft áhrif á ákvarðanatöku og tekið þátt í að móta þá framtíð sem þau óska sér“ segir Eeva Furman, formaður dómnefndar umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs.

Jafnframt bendir dómnefndin á að við lifum á tímum aukinnar upplýsingaóreiðu. Hún leggur því áherslu á mikilvægi þess að yngri kynslóðir hafi aðgang að nauðsynlegum verkfærum til meta upplýsingar með gagnrýnum hætti.

Tilnefningarferlið er opið og er öllum frjálst að senda inn tillögur. 

Skilyrði

Umhverfisverðlaunin eru veitt norrænu fyrirtæki, samtökum eða einstaklingi sem með fyrirmyndarvinnubrögðum hefur gert tillit til náttúru og umhverfis að föstum þætti í rekstri sínum eða starfi, eða sem á annan hátt hefur unnið mikilsvert starf fyrir umhverfið.

Dómnefndin ítrekar einnig að verkefnið skuli vera inngildandi og nýskapandi og geta verið öðrum hvatning og hægt að skala það upp svo vinna megi að því á alþjóðavísu.

Lokafrestur til að senda inn tilnefningar er 29. apríl 2026.

Um verðlaunin og verðlaunaafhendinguna

26. júní verður opinberað hvaða tillögur dómnefndin hefur tilnefnt til verðlaunanna.

Verðlaunahafinn verður tilkynntur á þingi Norðurlandaráðs í Helsinki í október. Verðlaunahafinn hlýtur 300.000 danskar krónur.

Fyrri verðlaunahafar:

2025 De Grønne Nabofællesskaber 
2024 Arnhildur Pálmadóttir 
2023 Renewcell 
2022 Sveitarfélagið Mariehamn fyrir Nabbens våtmark  
2021 Den Store Klimadatabase frá hugsmiðjunni Concito

Um umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs 
Umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs voru fyrst veitt árið 1995 og markmiðið með þeim er að efla vitund um náttúru- og umhverfisvernd á Norðurlöndum. Norðurlandaráð veitir einnig bókmenntaverðlaun, tónlistarverðlaun, kvikmyndaverðlaun og barna- og unglingabókmenntaverðlaun.