Ulf Stark og Linda Bondestam hlutu barna- og unglingabókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs

01.11.17 | Fréttir
Vinnare av Nordiska rådets barn och ungdommslitteraturpris 2017
Photographer
Magnus Fröderberg/norden.org
Sænski höfundurinn Ulf Stark, sem nú er látinn, og finnski myndskreytirinn Linda Bondestam hlutu barna- og unglingabókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir bókina „Djur som ingen sett utom vi“ („Dýr sem enginn hefur séð nema við“, óþýdd).

Ekkja Ulfs Stark, Janina Orlov, og Linda Bondestam tóku við verðlaununum að upphæð 350 þúsund DKK. Það var verðlaunahafi síðasta árs, Arnar Már Arngrímsson, sem afhenti verðlaunin við verðlaunaathöfn Norðurlandaráðs í Finlandia-húsinu í Helsinki.

Rökstuðningur dómnefndar:

Djur som ingen sett utom vi er afurð norrænnar samvinnu eins og hún gerist allra best. Í sameiningu hafa Ulf Stark rithöfundur og Linda Bondestam myndabókahöfundur skapað alveg einstaka bók. Litskrúðugar myndskreytingarnar og hin gagnorðu og dapurlegu ljóð um dýrin sem enginn þekkir mynda heild þar sem hinstu rök tilverunnar eru undir. Ulf Stark, sem hlýtur verðlaunin að sér látnum, hefur lagt alla sína lífsspeki í textana í bókinni. Þeir eru þannig eins konar bókmenntaleg erfðaskrá, en í textunum er jafnframt horft fram á veginn af miklu umburðarlyndi. Myndskreytingar Lindu Bondestam með djúprauðum himni og ákaflega blágrænum skógum, hafi og fjöllum, vitna um listamann sem tekst að hitta á hinn rétta tón skýrleika í hverju verki. Hér er á ferðinni mikilfengleg ljóðræna og stórkostleg myndlist í verki sem er heilsteypt, undursamlegt og fullt af lífsþrótti.