Viðbúnaðarmál á Norðurlöndum og í Eystrasaltsríkjunum
Ljósmyndari
Johannes Jansson/norden.org
Í ár verður degi Norðurlanda fagnað í heila viku víðs vegar um Norðurlönd og Eystrasaltsríkin með viðburðum af ýmsu tagi. Þema viðburðanna er viðbúnaðarmál og hvernig við getum eflt norrænt samstarf í þeim efnum.
Á Norðurlöndum hefjast hátíðahöldin í Danmörku mánudaginn 17. mars og fara svo um öll Norðurlönd fram til sunnudagsins 23. mars. Í Eystrasaltsríkjunum hófust þau þegar þann 13. mars í Litháen.