Afhending verðlauna Norðurlandaráðs 2025

28.10.25 | Viðburður
Ljósmyndari
Magnus Fröderberg/norden.org
Þriðjudaginn 28. október verður norræna menningarsamfélagið hyllt þegar verðlaun Norðurlandaráðs verða afhent í sænska þinghúsinu í Stokkhólmi. Veitt verða fimm verðlaun sem sýna það besta á sviði norrænna bókmennta, kvikmynda, tónlistar, barna- og unglingabókmennta og umhverfismála.

Upplýsingar

Dagsetning
28.10.2025
Tími
18:00 - 19:30
Staðsetning

Riksdagen
Riksgatan 1
100 12 Stockholm
Svíþjóð

Gerð
Verðlaunaafhending

Verðlaun Norðurlandaráðs eiga þátt í að auka sýnileika hins nána samstarfs Norðurlanda á sviði menningar- og umhverfismála. Þeim er ætlað að vekja áhuga almennings á norrænum bókmenntum, tungumálum, kvikmyndum og tónlist. Umhverfisverðlaunin eru veitt fyrir sérstakt framlag til þess að auka sjálfbærni á Norðurlöndum.

Verðlaun Norðurlandaráðs eru mikils metin á Norðurlöndum og vel þekkt um allan heim. Á verðlaunaafhendingunni koma saman fulltrúar menningarlífsins, stjórnmálamenn og gestir víðs vegar að af Norðurlöndum til að heiðra verðlaunahafana, sem hver um sig hlýtur verðlaunastyttuna Nordlys og 300.000 danskar krónur.

Hægt verður að fylgjast með verðlaunaafhendingunni í beinni útsendingu eða eftir á á vefsíðu okkar. Verðlaunaafhendingin hefst kl. 18.00.

Hver hreppir verðlaun Norðurlandaráðs?

Tilkynnt verður um handhafa verðlauna Norðurlandaráðs þann 21. október, einni viku áður en verðlaunin verða afhent.

Hér má lesa nánar um þau sem tilnefnd eru til verðlaunanna fimm:

Viltu hitta verðlaunahafana?

Hægt verður að fagna verðlaunahöfunum á viðburði í Kulturhuset í Stokkhólmi mánudaginn 27. október. Aðgangur er ókeypis og öllum opinn en þar sem sætaframboð er takmarkað er skráningar krafist.