Hér eru tilnefningarnar til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs 2025
Frá árinu 2002 hafa kvikmyndaverðlaunin verið veitt fyrir kvikmyndir í fullri lengd sem eiga rætur í norrænni menningu og hafa mikið listrænt gildi.
Hér eru tilnefningarnar til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs 2025:
Danmörk
Finnland
Færeyjar
Grænland
Ísland
Noregur
Svíþjóð
Tilkynnt um verðlaunahafann 21. október
Tilkynnt verður um handhafa kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs hinn 21. október. Handhafa verðlaunanna verður afhent styttan Norðurljós á sérstakri verðlaunahátíð sem fram fer í sænsku þinghöllinni í tengslum við þing Norðurlandaráðs í Stokkhólmi.
Verðlaunaféð nemur 300 þúsundum danskra króna og skipta handritshöfundur, leikstjóri og framleiðandi upphæðinni jafnt á milli sín, sem undirstrikar að kvikmyndagerð sem listgrein er fyrst og fremst afurð náins samspils þessara þriggja þátta.
Hér verður hægt að sjá bestu myndir Norðurlanda í haust
Í haust verða tilnefndu myndirnar sjö sýndar á viðburðum og stöðum víða um Norðurlönd.
Um kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs
Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs eru veitt norrænni kvikmynd með mikið listrænt gildi. Myndin þarf að hafa verið frumsýnd í kvikmyndahúsum á tímabilinu 1. janúar til 30. júní 2025 eða milli 1. júlí og 31. desember árið á undan.
Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs voru veitt í fyrsta sinn árið 2002 og eru nú veitt árlega um leið og önnur verðlaun ráðsins fyrir bókmenntir, barna- og unglingabókmenntir, tónlist og starf að umhverfismálum. Norræni kvikmynda- og sjónvarpssjóðurinn hefur umsjón með kvikmyndaverðlaunum Norðurlandaráðs.