Hér eru tilnefningarnar til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2025
Verkefnin átta sem hljóta tilnefningu til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2025 eru:
Verðlaunahafinn kynntur 21. október
Tilkynnt verður um handhafa umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2025 þann 21. október. Verðlaunagripurinn Norðurljós verður afhentur 28. október við verðlaunaathöfn í tengslum við þing Norðurlandaráðs í Stokkhólmi. Verðlaunaféð er 300 þúsund danskar krónur.
Þátttaka samfélagsins í grænum umskiptum
Með þema ársins vilja umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs vekja athygli á nauðsyn þess að allir aðilar í samfélaginu taki þátt í baráttunni gegn loftslagsbreytingum, sinni hinum grænu umskiptum og taki nauðsynleg skref til að verja, viðhalda og endurheimta vistkerfi
Þátttaka samfélagsins – verkefni sem virkjar almenning í grænum umskiptum
Án þátttöku almennings í náttúru- og umhverfismálum yrði erfitt að búa í haginn fyrir sjálfbæra framtíð. Allir aðilar í samfélaginu þurfa að taka þátt í baráttunni gegn loftslagsbreytingum, sinna hinum grænu umskiptum og taka nauðsynleg skref til að verja, viðhalda og endurheimta vistkerfi.
Þegar samfélagið stendur saman og vinnur að sameiginlegum markmiðum getum við náð miklum árangri á stuttum tíma. Og tíminn skiptir öllu hvað varðar umhverfis- og náttúruvernd og grænu umskiptin. Við þurfum að ná árangri og það þarf að gerast hratt. Það gerist aðeins með virku og öflugu borgarasamfélagi.
Þátttaka almennings getur verið af ýmsu tagi, t.d. þátttaka í félagasamtökum eða einstaklingsframtak sem stuðlar að sjálfbærni og þekkingu um umhverfismál. Breyttar venjur geta skipt sköpum fyrir þróun í átt að sjálfbærri framtíð.
Til eru fjölmörg dæmi um að þekking almennings nýtist til vísindarannsókna, svo kölluð lýðvísindi. Sem dæmi um slíkt má taka athuganir fuglaáhugafólks eða baráttuna gegn ágengum tegundum. Þessi verkefni eru ekki aðeins mikilvæg fyrir gagnasöfnun heldur einnig til að auka þekkingu og þátttöku almennings.
Um umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs
Umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs voru fyrst veitt árið 1995 og markmiðið með þeim er að efla vitund um náttúru- og umhverfisvernd á Norðurlöndum. Þau eru veitt norrænum fyrirtækjum, samtökum eða einstaklingum sem öðrum til eftirbreytni hefur tekist að samþætta umhverfissjónarmið starfsemi sinni eða framtaki eða á annan hátt lyft grettistaki í þágu umhverfisverndar.
Ferlið er opið og er öllum frjálst að senda inn tillögur að tilnefningum til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs. Í ár var 71 tillaga send inn.