Tilnefningar til tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs 2025

20.05.25 | Fréttir
Ljósmyndari
norden.org
Í ár 2025 er það okkur ánægja að kynna til leiks tólf framúrskarandi tilnefningar til tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs – ellefu einstaklinga og einn tónlistarhóp. Tilnefningarnar í ár endurspegla það besta sem norræn tónlist hefur upp á að bjóða í dag og sýna bæði breidd og gæði norræns tónlistarlífs.

Tilnefningarnar í ár ná yfir breitt svið tónlistarlegrar tjáningar, allt frá óperu, klassískri tónlist og samtímatónlist til rokks, popps og djass. Það sem þau eiga sameiginlegt er að öll flytja þau frábæra tónlist af miklum frumleika. Sum túlka stórverk tónlistarsögunnar, önnur eru skapandi listamenn og tónskáld.

Þau tilnefndu til tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs 2025 standa fyrir það fremsta hvert á sínu sviði og eiga sinn þátt í mótun og endurnýjun tónlistar á Norðurlöndum. Saman mynda þau fjölbreyttan og spennandi hóp listamanna sem ryður brautina fyrir norræna tónlist hvert á sinn hátt.

Hér eru þau tilnefndu:

Danmörk

Finnland

Færeyjar

Ísland

Noregur

Svíþjóð

Álandseyjar

Það voru fulltrúar dómnefndar tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs sem tilnefndu listafólkið.

Tilkynnt um verðlaunahafann 21. október

Tilkynnt verður um sigurvegara tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs í tengslum við Norðurlandaráðsþing í Stokkhólmi síðustu vikuna í október. Handhafa verðlaunanna verður afhent styttan Norðurljós á sérstakri verðlaunahátíð. Verðlaunin nema 300 þúsundum danskra króna.

Um tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs

Tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs voru veitt í fyrsta sinn árið 1965. Þeim er ætlað að vekja athygli á tónlistarsköpun og tónlistarflutningi sem telst hafa mikið listrænt gildi. Verðlaunin eru til skiptis veitt annars vegar núlifandi tónskáldi og hins vegar tónlistarhópi eða -flytjanda. Í ár renna verðlaunin til tónskálds.