Hér eru tilnefningarnar til barna- og unglingabókmennta- verðlauna Norðurlandaráðs 2025
Ljósmyndari
norden.org
Tilnefningarnar til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs í ár sýna hve miklum möguleikum myndabækur, unglingaskáldsögur og myndasögur búa yfir. Myndabækur um stríð og söknuð, skemmtilegar rímur og þulur, fyndnar og alvarlegar myndasögur, bók um óheft ADHD, hús fullt af leyndarmálum og ferð yfir í annan heim á gúmmíbát eru nokkrar af þeim mörgu sögum sem er að finna meðal tilnefninganna í ár.
Danmörk
Finnland
Færeyjar
Grænland
Ísland
Noregur
Samíska málsvæðið
Svíþjóð
Álandseyjum
Verðlaunahafinn kynntur 21. október
Tilkynnt verður um handhafa barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2025 hinn 21. október. Handhafa verðlaunanna verður afhent styttan Norðurljós á sérstakri verðlaunahátíð 28. október í tengslum við þing Norðurlandaráðs í Reykjavík. Verðlaunin nema 300 þúsundum danskra króna.
Um barna- og unglingabókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs
Barna- og unglingabókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs voru veitt í fyrsta sinn árið 2013 að ósk norrænu menningarmálaráðherranna, sem höfðu um árabil viljað efla og vekja athygli á barna- og unglingabókmenntum á Norðurlöndum.
Verðlaunin eru veitt fyrir fagurbókmenntaverk fyrir börn og unglinga sem samið er á einu af norrænu tungumálunum. Verkið getur samanstaðið af bæði texta og myndum og skal uppfylla strangar kröfur um bókmenntalegt og listrænt gildi.