Félagsleg aðstoð á Álandseyjum

Ef tekjur þínar eða fjölskyldunnar þinnar nægja ekki til að standa straum af daglegum útgjöldum getur þú sótt um félagslega fjárhagsaðstoð. Á þessari síðu eru gefnar upplýsingar um mismunandi tegundir félagslegrar aðstoðar, hver á rétt á henni og hvernig sótt er um hana.

Á Álandseyjum er sótt um félagslega aðstoð hjá félagsþjónustu sveitarfélaganna (Kommunernas socialtjänst, KST). Félagsleg fjárhagsaðstoð er skattfrjáls og ætluð sem skammtímaaðstoð til að komast yfir tímabundna fjárhagserfiðleika, koma í veg fyrir slíka erfiðleika og stuðla að því að fólk geti séð fyrir sér sjálft. Nánari upplýsingar um félagslega aðstoð er að finna á vefsvæði KST.

Tegundir félagslegrar aðstoðar

Félagsleg aðstoð er þrenns konar, en í fyrsta lagi er grunnaðstoð. Ef þú hefur önnur útgjöld sem grunnaðstoðin nægir ekki fyrir getur verið að þú uppfyllir skilyrði fyrir viðbótaraðstoð eða fyrirbyggjandi aðstoð.

Félagsleg grunnaðstoð

Grunnaðstoð samanstendur af grunnþætti og framlagi fyrir önnur útgjöld sem grunnþátturinn nægir ekki fyrir. Grunnþátturinn stendur straum af útgjöldum á borð við mat, föt, almenningssamgöngur, símareikninga, útgjöld vegna tómstunda o.s.frv. Minniháttar sjúkrakostnaður er einnig innifalinn í grunnþætti félagslegrar aðstoðar og því er ekki hægt að skrá hann sem sérstök útgjöld. Dæmi um slíkan kostnað er kostnaður vegna ólyfseðilsskyldra lyfja, krema, vítamína og plástra.

Aðstoð getur einnig verið veitt fyrir önnur nauðsynleg útgjöld á borð við húsnæðiskostnað, sjúkrakostnað sem ekki fellur undir grunnþáttinn, gjöld vegna barnagæslu og frístunda, kostnað vegna umgengni við börn og útgjöld við að útvega nauðsynleg persónuskilríki, dvalarleyfi eða ferðaskjöl.

Samþykktur húsnæðiskostnaður fer eftir tegund húsnæðis. Slíkur kostnaður getur til dæmis verið leiga, vextir af húsnæðisláni, þjónustugjöld, vatns- og hitakostnaður, rafmagnsreikningar, heimilistrygging og nauðsynlegur flutningskostnaður. Flutningskostnaður getur verið samþykktur ef ástæðan er réttlætanleg, svo sem skilnaður, heilsufarsástæður, þörf á stærra heimili vegna breytingar á fjölskyldustærð, heimilisleysi eða flutningur vegna vinnu eða náms eða í ódýrara húsnæði.

Upplýsingar um núverandi upphæðir grunnþáttarins er að finna á vef KST um félagslega aðstoð.

Félagsleg viðbótaraðstoð

Félagsleg viðbótaraðstoð getur verið veitt til að standa straum af útgjöldum vegna sérstakra þarfa eða kringumstæða einstaklings eða fjölskyldu. Slík útgjöld þurfa að vera nauðsynleg til að tryggja framfærslu eða stuðla að því að fólk geti séð fyrir sér sjálft.

Sérstakar þarfir eða kringumstæður geta verið félagsleg aðstoð til langs tíma, langtímaveikindi eða alvarleg veikindi, sérþarfir vegna tómstunda barna eða aðrar sambærilegar kringumstæður eða þarfir. Félagsleg aðstoð er almennt ekki í boði vegna skulda, lána, vanskila skatta eða neyslulána, svo dæmi séu nefnd. 

Fyrirbyggjandi félagsleg aðstoð

Fyrirbyggjandi félagsleg aðstoð getur einnig verið veitt í einstökum tilfellum til að tryggja húsnæði, leysa vandmál vegna mikilla skulda eða skyndilega versnandi fjárhagsstöðu, sem og í öðrum tilgangi til að hjálpa þér að standa á eigin fótum. Fyrirbyggjandi félagsleg aðstoð er aðeins veitt í undantekningartilfellum og aðeins í eitt skipti eða í staka mánuði.

Réttur á félagslegri aðstoð

Félagsleg grunnaðstoð getur verið veitt samkvæmt umsókn einstaklings eða fjölskyldu sem hefur fasta búsetu á Álandseyjum. KST metur hverja umsókn fyrir sig. Félagslegri aðstoð lýkur þegar einstaklingur á ekki lengur rétt á henni. Það getur til dæmis gerst við flutning til útlanda, andlát eða þegar byrjað er að vinna og skilyrði fyrir félagslegri aðstoð eru ekki lengur uppfyllt. Félagsleg aðstoð getur lokið af annarri sambærilegri ástæðu eða ef einstaklingur ákveður sjálfur að hætta að þiggja hana.

Við tímabundna dvöl á Álandseyjum þarf að leita aðstoðar og hjálpar á annan hátt, til að mynda frá fjölskyldu, tryggingafélagi eða heimalandinu. Allir sem dvelja á Álandseyjum eiga aftur á móti rétt á nauðsynlegri hjálp í neyðaraðstæðum. Ef þú telst dvelja tímabundið á Álandseyjum og aðstæður eru brýnar getur KST veitt greiðsluþátttöku fyrir aðstoð við heimferð, mat og nauðsynleg lyfseðilsskyld lyf. Ef þú telst hafa fasta búsetu má einnig taka tillit til annarra útgjalda við ákvörðun um rétt til félagslegrar aðstoðar.

Sem Ríkisborgarar norrænna landa eiga rétt á félagslegri grunnaðstoð samkvæmt lögum um félagslega aðstoð strax við komu til Finnlands og Álandseyja, rétt eins og aðrir íbúar sem hafa fasta búsetu í Finnlandi og á Álandseyjum. Almannatryggingabætur sem þú kannt að fá frá upprunalandi þínu verða kannaðar og tekið verður tillit til þeirra þegar metið er hvort þú eigir rétt á félagslegri aðstoð.

Sækja um félagslega aðstoð

Félagsleg aðstoð er fjárhagsaðstoð sem síðasta úrræði. Það þýðir að þú verður fyrst að sækja um aðra aðstoð sem þú kannt að eiga rétt á, svo sem húsnæðisstyrk, bætur vegna veikinda, lífeyri, atvinnuleysisbætur og námsmannabætur. Þú getur sótt um félagslega aðstoð með rafrænni þjónustu KST eða pappírseyðublaði ásamt viðeigandi fylgiskjölum um útgjöld, tekjur og bankareikningsyfirlit.

Nánari upplýsingar

Á vefsíðum Info Norden má finna upplýsingar um félagslega aðstoð annars staðar á Norðurlöndum og þær stofnanir sem leita skal til vegna spurninga.

Hafa samband við yfirvöld
Spurning til Info Norden

Ef þú ert með spurningu eða ef þú hefur rekist á hindrun í norrænu landi skaltu fylla út eyðublað okkar.

ATH: Ef spurningin þín varðar afgreiðslu tiltekins máls eða umsóknar eða annarra persónulegra mála skaltu hafa samband við viðkomandi yfirvald.