Framhaldsskóli og starfsmenntun á Álandseyjum

Á Álandseyjum fer menntun á framhaldsskólastigi fram í Framhaldsskóla Álandseyja (Ålands gymnasium). Á þessari síðu eru gefnar upplýsingar um almennt framhaldsskólanám, starfsmenntun, lærlingasamninga, námsmannaskipti, námsmat og hvernig sótt er um í framhaldsskóla. Á síðunni eru einnig gefnar upplýsingar um lýðháskóla Álandseyja.

Allir sem hafa lokið grunnskólaprófi eiga rétt á að sækja um nám í skóla á framhaldsskólastigi á Álandseyjum. Framhaldsskólanám á Álandseyjum er ókeypis, á sænsku og yfirleitt þriggja ára langt, en eftir þörfum og í sérstökum tilfellum er hægt að lengja það í fjögur ár. Stúdentspróf gefur almennan rétt til háskólanáms. Ef framhaldsskóla er lokið án stúdentsprófs gefur það rétt til að sækja um nám við fagháskóla eða lýðháskóla.

Nánari upplýsingar um nám á Álandseyjum er að finna á síðum Info Norden um nám á Álandseyjum og einkunnakvarða á Álandseyjum. 

Framhaldsskólinn á Álandseyjum

Menntun á framhaldsskólastigi byggir ofan á námsskrá grunnskólanna og Framhaldsskólinn á Álandseyjum er sú stofnun sem veitir kennslu í tveimur skólum. Ålands lyceum ber ábyrgð á almennri framhaldsskólakennslu og Ålands yrkesgymnasium á starfsmenntun. Einnig fer fram kennsla í minni hópum með starfsmiðaðri sérkennslu. Í Ålands yrkesgymnasium er einnig boðið upp á menntun og endurmenntun fyrir fullorðna. 

Samkvæmt lagafrumvarpi haustið 2026 verður Lýðháskólinn á Álandseyjum (Ålands folkhögskola) hluti af Framhaldsskólanum á Álandseyjum (Ålands gymnasium).

Ålands lyceum

Ålands lyceum er almennur framhaldsskóli sem gefur grunn fyrir nám við háskóla eða lýðháskóla og annað nám sem byggir ofan á framhaldsskólanám, bæði innanlands og erlendis. Námið gefur undirbúningspróf fyrir framhaldsskóla. Það felur í sér framhaldsskólapróf og stúdentspróf.

Nánari upplýsingar um nám og námsbrautir Ålands lyceum er að finna á vefsvæði Framhaldskólans á Álandseyjum.

Ålands yrkesgymnasium

Ålands yrkesgymnasium býður upp á grundvallarstarfsmenntun á ýmsum starfsmiðuðum námsbrautum. Námsbrautirnar undirbúa nemendur fyrir sjálfstæð störf innan atvinnugreinar eða áframhaldandi lýðháskólanám. Námið gefur framhaldsskólapróf með starfssérhæfingu.

Til að halda áfram námi við lýðháskóla eða fagháskóla er innan starfsmenntunarnámsleiðanna hægt að velja að taka undirbúningsnám fyrir háskóla (HUTH) sem er í samræmi við almenna námskrá í Ålands lyceum. Þetta er í boði í öllum námsleiðum öðrum en sjómannanámi og starfsmiðaðri sérkennslu.

Nánari upplýsingar um Ålands yrkesgymnasium og námsbrautir er að finna á vefsvæði Framhaldskólans á Álandseyjum.

Lýðháskólinn á Álandseyjum

Lýðháskólinn á Álandseyjum býður upp á starfsmiðaðar námsleiðir og nám í m.a. skapandi greinum. NYA-námsleiðin er fullt nám til eins árs sem er sniðið að þeim sem hafa lokið við grunnskóla og eru á aldrinum 15-20 ára. NYA-námsleiðin gefur undirbúning fyrir frekara nám og tækifæri til að bæta einkunnir ef þú ert með grunnskólapróf frá Álandseyjum. 

Lýðháskólinn á Álandseyjum skipuleggur einnig Grundvux, sem er fullt nám fyrir þau sem ekki hafa lokið grunnskólaprófi. Grundvux stendur þeim til boða sem hafa lögheimili á Álandseyjum, eru 17 ára eða eldri og þurfa á grunnskólaprófi að halda til að geta stundað frekara nám.

Nánari upplýsingar um Lýðháskólann á Álandseyjum er að finna á vefsíðu skólans.

Framhaldsskólanám fyrir fullorðna

Ålands yrkesgymnasium býður upp á námskeið, endurmenntun og nám fyrir þau sem eru 18 ára og eldri og eru á leið á vinnumarkað eða eru þegar starfandi. Sumar námsleiðir eru framhaldsnám sem krefst grunnskólaprófs.

Finna má nánari upplýsingar um nám fyrir fullorðna á vefsíðu Framhaldsskólans á Álandseyjum.

Nám með lærlingasamningi

Framhaldsskólinn á Álandseyjum býður upp á nám í gegnum lærlingasamninga. Slíkt nám felur í sér þjálfun á vinnustað ásamt bóklegu námi. Ålands yrkesgymnasium og vinnuveitandi komast að samkomulagi um hvað þú átt að læra og hvaða menntun þú færð. Námið er skipulagt bæði sem grunnmenntun og sem viðbótarnám fyrir ungmenni og fullorðna á framhaldsskólastigi. Skilyrði þess að stunda nám með lærlingasamningi eru eftirfarandi:

  • Þú þarft að vera orðið/n/n 15 ára
  • Þú ert með grunnskólapróf eða samsvarandi
  • Þú vinnur minnst 25 klst. í viku að meðaltali
  • Þú færð greidd laun samkvæmt kjarasamningi
  • Þú vinnur hjá vinnuveitanda sem gefur þér tækifæri til að stunda nám með lærlingasamningi
  • Þú starfar á vinnustað og vinnur að verkefnum sem samsvara innihaldi námsgráðunnar sem þú vilt ljúka

Nánari upplýsingar nám með lærlingasamningi er að finna á vefsvæði Framhaldskólans á Álandseyjum.

Umsókn um framhaldsskólanám á Álandseyjum

Allir sem hafa lokið grunnskólaprófi eiga rétt á að sækja um nám í skóla á framhaldsskólastigi á Álandseyjum. Norðurlönd hafa gert með sér samning sem tryggir ungu fólki á Norðurlöndum aðgang að framhaldsskólamenntun í öllum norrænu löndunum á jöfnum grundvelli við ríkisborgara heimalandsins. Lesa má um samninginn um norrænt menntunarsamfélag á framhaldsskólastigi á síðu Info Norden um norræna menntasamninga og menntaáætlanir. Ef þú ert ekki með grunnskólapróf eða prófskírteini frá öðru landi geturðu sótt um nám í gegnum matsferli. 

Allir umsækjendur um nám við Ålands lyceum, Ålands yrkesgymnasium og Lýðháskólanum á Álandseyjum sem hafa lokið grunnskólaprófi á Álandseyjum eða í Finnlandi sækja um á vefnum. Undantekningin er umsókn um nám samkvæmt matsferli. Ef þú getur ekki nýtt þér umsókn á vefnum skaltu hafa samband við inntökufulltrúa við Framhaldsskólann á Álandseyjum og biðja um að fá sent umsóknareyðublað eða sækja um á staðnum í skólanum. 

Nánari upplýsingar um inntökuskilyrði, dagsetningar, inntökupróf og leiðbeiningar fyrir umsókn á vefnum er að finna á síðu Framhaldsskólans á Álandseyjum um umsóknir og inntöku.

Námsmannaskipti

Ålands lyceum og Ålands yrkesgymnasium eru Erasmus+-skólar. Það þýðir að nemendur geta lokið hluta af námi sínu erlendis, til dæmis með því að ljúka hluta starfsþjálfunar sinnar eða stunda nám við annan skóla erlendis. Auk námsmannaskipta kunna skólarnir að halda úti verkefnum sem nemendur frá öðrum löndum taka þátt í. 

Ræddu við skólann um hvaða skiptu eru möguleg og lestu meira á síðu Framhaldsskólans á Álandseyjum um alþjóðastarf.

Staðfesting:

Námsmat felur í sér að Framhaldsskólinn á Álandseyjum metur færni og lokið nám á framhaldsskólastigi. Við matið eru þekking og reynsla borin saman við námskröfur og föst matsviðmið. Matið getur leitt til þess að þú fáir prófgráðu eða hluta af prófgráðu. Tilgangur matsins er meðal annars að gefa formlega staðfestingu á færni, tækifæri til að hefja nám á réttu stigi og stytta námstíma við áframhaldandi nám. Nánari upplýsingar námsmat er að finna á vefsvæði Framhaldskólans á Álandseyjum.

Nánari upplýsingar

Á vefsíðum Info Norden er að finna upplýsingar um framhaldsskóla og starfsmenntun annars staðar á Norðurlöndum og þær stofnanir sem leita skal til vegna spurninga.

Hafa samband við yfirvöld
Spurning til Info Norden

Ef þú ert með spurningu eða ef þú hefur rekist á hindrun í norrænu landi skaltu fylla út eyðublað okkar.

ATH: Ef spurningin þín varðar afgreiðslu tiltekins máls eða umsóknar eða annarra persónulegra mála skaltu hafa samband við viðkomandi yfirvald.