Leiðbeiningar: sumarstörf og árstíðabundin störf í Noregi
Hvernig finnur þú árstíðarbundið starf í Noregi?
Viðeigandi upplýsingar er að finna á síðunni Atvinnuleit í Noregi.
Ef þú ert 18–30 ára og ríkisborgari norræns lands eða ESB-ríkis getur þú leitað þér að árstíðarbundnu starfi á Norðurlöndum með Nordjobb. Nordjobb hjálpar þér við að finna þér húsnæði og með allt það praktíska og býður einnig upp á menningar- og frístundadagskrá. Nánari upplýsingar er að finna á vefsíðum Nordjobb.
Atvinnu- og dvalarleyfi vegna árstíðabundinna starfa í Noregi
Norrænum ríkisborgurum er frjálst að ferðast til Noregs til að búa þar og starfa. Ekki þarf vegabréfsáritun, atvinnuleyfi eða dvalarleyfi.
Ríkisborgurum annarra ESB-/EES-ríkja eða Sviss er frjálst að ferðast til Noregs og dveljast þar í allt að þrjá mánuði. Ef þú ert í atvinnuleit meðan á dvölinni stendur er þér heimilt að dveljast í landinu í allt að sex mánuði.
Þú þarft að hafa gild persónuskilríki meðferðis til að starfa í Noregi.
Skattar í Noregi
Til að mega starfa í Noregi þarf skattkort. Ef þú hyggst búa og starfa tímabundið í Noregi muntu fá d-númer og getur sótt um skattkort hjá skattinum (Skatteetaten).
Bankareikningur í Noregi
Til að geta opnað bankareikning í Noregi þarftu að fá tímabundna kennitölu (d-númer). Þú þarft að hafa norskan bankareikning til að fá útgreidd laun. Hafðu gilt vegabréf með þér þegar þú ferð í bankann.
Bank-ID er einnig notað mikið í samskiptum við yfirvöld en ef þú ert ekki með skráð lögheimili í Noregi getur þú ekki fengið Bank-ID í Noregi.
Almannatryggingar við árstíðabundin störf í Noregi
Meginreglan er sú að þú tilheyrir almannatryggingakerfi þess lands sem þú starfar í. Að tilheyra almannatryggingakerfi lands þýðir að reglur viðkomandi lands gilda meðal annars um eftirfarandi:
- Atvinnuleysisbætur
- Lífeyri
- Sjúkradagpeninga
- Barnabætur
- Heilbrigðisþjónustu
- fæðingarorlofsgreiðslur
Starfskjör og réttindi launafólks í Noregi
Norska vinnueftirlitið veitir gagnlegar upplýsingar um réttindi og skyldur á norskum vinnumarkaði. Mörg stéttarfélög veita einnig upplýsingar fyrir fólk sem tekur að sér sumarvinnu í Noregi.
Lífeyrir í Noregi
Ef þú starfar í Noregi greiðir þú lífeyrissjóðsgjöld og vinnur þér inn lífeyri í Noregi. Lífeyrisréttindi geta ekki flust milli landa en ef þú hefur starfað í mörgum löndum gætir þú hafa unnið þér inn lífeyri í öllum þeirra.
Ef þú nærð ekki að vinna þér inn lífeyri í Noregi leggur lífeyrisstofnun í heimalandi þínu saman tímabilin þegar þú starfaðir í Noregi og tekur þau inn í reikninginn þegar lífeyrir þinn er reiknaður í heimalandi þínu. Þetta er meginreglan um samlagningu tímabila. Þegar þú sækir um lífeyri í búsetulandi þínu þarftu að gefa upp tímabilin þegar þú starfaðir í Noregi. Yfirvöld skrásetja ekki alltaf starfstímabil, svo þú skalt geyma launaseðla sem sönnun á störfum þínum.
Réttur til heilbrigðisþjónustu við árstíðarbundin störf í Noregi
Allir sem dvelja í Noregi fá heilbrigðisþjónustu þegar þörfin er brýn. Ef þú býrð tímabundið í Noregi og veikist eða slasast áttu rétt á að fá læknisþjónustu.
Þótt þú eigir rétt á heilbrigðisþjónustu þarftu að greiða hluta sjúklings af lækniskostnaði („egenandel“). Yfirleitt þarf einnig að framvísa nafnskírteini eða Evrópska sjúkratryggingaskírteininu.
Spyrja Info Norden
Þú getur fyllt út fyrirspurnareyðublað okkar ef þú hefur spurningar eða hefur lent í hindrunum í öðru norrænu landi.
Ath.! Ef spurningin varðar meðhöndlun tiltekins máls, umsóknar eða persónulegra aðstæðna skaltu hafa samband við viðeigandi yfirvöld.
Ef þú ert með spurningu eða ef þú hefur rekist á hindrun í norrænu landi skaltu fylla út eyðublað okkar.
ATH: Ef spurningin þín varðar afgreiðslu tiltekins máls eða umsóknar eða annarra persónulegra mála skaltu hafa samband við viðkomandi yfirvald.