Leiðbeiningar: starfað í Noregi
Þegar íhugað er að sækja um vinnu í Noregi þarf að huga að ýmsu, svo sem hvar ber að leita að vinnu, starfsleyfum, sköttum, tryggingum og réttindum. Hér að neðan er að finna gátlista yfir það mikilvægasta sem þarf að hafa í huga þegar sótt er um vinnu í Noregi.
Atvinnuleyfi í Noregi
Norrænum ríkisborgurum (dönskum, finnskum, íslenskum, norskum og sænskum) er frjálst að búa og starfa í Noregi án atvinnu- og dvalarleyfis. Ef þú ert ríkisborgari annars lands gilda mismunandi reglur eftir því hvort það land er í ESB/EES eða ekki. Nánari upplýsingar er að finna á vefsíðum Info Norden.
Um atvinnuleit í Noregi
Upplýsingar um atvinnuumsóknir í Noregi er að finna á vefsíðum Info Norden. Einnig eru gefnar upplýsingar um atvinnuleit í leiðbeiningum yfirvalda, Work in Norway.
Atvinnuleit í Noregi á atvinnuleysisbótum frá heimalandinu
Ef þú þiggur atvinnuleysisbætur frá öðru landi í ESB eða EES getur þú að meginreglunni til haldið áfram að fá þær í þrjá mánuði á meðan þú ert í atvinnuleit í Noregi. Nánari upplýsingar er að finna á vefsíðum Info Norden.
Löggilding starfa í Noregi
Starfsleyfi þarf til að starfa í sumum atvinnugreinum í Noregi. Nánari upplýsingar má finna á vefsíðum Info Norden.
Laun og starfskjör í Noregi
Almennar upplýsingar um réttindi fólks sem starfar í Noregi er að finna á vefsíðum Info Norden. Upplýsingar um laun og starfskjör í Noregi eru gefnar á vefsíðum norska vinnueftirlitsins (Arbeidstilsynet).
Skattar við störf í Noregi
Þegar þú byrjar að vinna í Noregi þarftu að vera með skattkort og norska kennitölu: d-númer eða „personnummer“ / “fødselsnummer“. Þú finnur upplýsingar um kennitölur, skatthlutföll og skattframtöl hjá norsku skattstofunni, Skatteetaten. Þú getur einnig nálgast almennar upplýsingar um skatta á dönsku, finnsku, íslensku og sænsku á vefgáttinni Nordisk eTax, sem rekin er í samstarfi skattyfirvalda á Norðurlöndunum.
Almannatryggingar í Noregi
Ef þú flytur til Noregs til að vinna þar þarftu að meginreglunni til að tilheyra norska almanntryggingakerfinu. Í sumum er einstaklingur þó tryggður af almannatryggingum í hinu landinu, til dæmis þegar um er að ræða útsenda starfsmenn eða ef einnig er starfað í öðru landi en Noregi.
Að tilheyra almannatryggingakerfi lands þýðir að reglur viðkomandi lands gilda meðal annars um eftirfarandi:
Starfað eða búið í öðru norrænu landi
Í vissum kringumstæðum þarf að hafa sérstakar gætur á því hvaða reglur gilda um skatta og almannatryggingar. Þetta á við:
- Ef þú býrð í Noregi en starfar í öðru norrænu landi
- Ef þú býrð annars staðar á Norðurlöndum en starfar í Noregi
Almannatryggingar
Meginreglan er sú að þú tilheyrir almannatryggingakerfi þess lands sem þú starfar í. Ef þú starfar í tveimur norrænum löndum tilheyrir þú að meginreglunni til almannatryggingakerfi þess lands sem þú býrð í ef þú starfar meira í því landi. Ef þú ert ekki viss um hvaða almannatryggingakerfi þú tilheyrir skaltu hafa samband við norsku vinnumála- og velferðarstofnunina, NAV.
Ef þú starfar í tveimur löndum þurfa vinnuveitendur þínir yfirleitt að greiða tryggingagjöld til landsins þar sem þú ert aðili að almannatryggingum.
Skattar
Nánari upplýsingar um skattaumhverfi fyrir vinnuferðalanga er að finna á Nordisk eTax-vefgáttinni sem rekin er í samstarfi skattyfirvalda á Norðurlöndunum.
Stéttarfélög
Upplýsingar um norsk stéttarfélög er að finna á vefsíðum Info Norden.
Árstíðabundin störf fyrir ungt fólk
Nordjobb miðlar árstíðabundnum störfum til íbúa á Norðurlöndum eða í löndum ESB á aldrinum 18 til 30 ára. Krafa er gerð um að kunna dönsku, norsku eða sænsku.
Nánari upplýsingar
Ef þú ert með spurningu eða ef þú hefur rekist á hindrun í norrænu landi skaltu fylla út eyðublað okkar.
ATH: Ef spurningin þín varðar afgreiðslu tiltekins máls eða umsóknar eða annarra persónulegra mála skaltu hafa samband við viðkomandi yfirvald.