Ökutæki á Álandseyjum
Á Álandseyjum gilda sérstök umferðarlög sem eru frábrugðin þeim finnsku, en eru þó í flestum atriðum eins, til dæmis hvað varðar tolla og skatta. Fordonsmyndigheten ber ábyrgð á skráningu bifreiða, eftirvagna og fljótandi fara á Álandseyjum. Stofnunin sér einnig um skoðun ökutækja á Álandseyjum.
Upplýsingar um ökuskírteini er að finna á síðu Info Norden um ökuskírteini á Álandseyjum. Einnig er nánari upplýsingar að finna á síðunni „Ökutæki í Finnlandi“.
Tollafgreiðsla ökutækja
Álandseyjar tilheyra ekki skattasvæði ESB og því er tollur lagður á öll ökutæki sem þarf að skrá, óháð virði þeirra. Ítarlegar leiðbeiningar um tollafgreiðslu ökutækja sem eru flutt til Álandseyja og skráð það eru gefnar á vefsíðu tollyfirvalda um ökutæki á Álandseyjum.
Þegar notað ökutæki er flutt inn sem búslóð til Álandseyja þarf að tollafgreiða það, óháð því hvaða landi eða svæði það er flutt inn frá. Bíllinn þarf fyrst að fara í gegnum toll þegar hann er fluttur til Álandseyja í fyrsta sinn í tengslum við flutninginn.
Ef ökutæki er flutt inn sem búslóð frá Finnlandi eða öðru ESB-ríki er hægt að tollafgreiða það í tollinum í Maríuhöfn eða með rafrænni þjónustu tollyfirvalda. Ef ökutæki er flutt inn sem búslóð frá landi sem ekki er í ESB, svo sem Noregi eða Íslandi, er hægt að tollafgreiða það með eyðublaðinu „En privatpersons anmälan för förtullning av flyttgods från ett område utanför EU:s tull- och skatteområde (1161)“ sem finna má á vefsvæði tollyfirvalda.
Þegar þú kaupir notað ökutæki annars staðar í Finnlandi eða frá öðru ESB-ríki, til dæmis Svíþjóð, þarf að tollafgreiða ökutækið en ekki þarf að greiða tollagjöld. Þú þarft að greiða finnskan innflutningsvirðisaukaskatt ef ökutækið er var í eigu einstaklings og gildandi virðisaukaskattur í landinu þar sem ökutækið var tekið í notkun var greiddur af tækinu á árinu þegar það var tekið í notkun. Þú getur þó fengið innflutningsívilnun (dulinn skattur) fyrir finnskan virðisaukaskatt.
Ef notað ökutæki er keypt til Álandseyja frá landi utan ESB, til dæmis Noregi, þarf að tollafgreiða það, greiða finnskan innflutningsvirðisaukaskatt og viðeigandi tollgjöld.
Nánari upplýsingar um tollafgreiðslu notaðra ökutækja er að finna á vefsíðu tollyfirvalda um ökutæki á Álandseyjum.
Þegar þú kaupir nýtt ökutæki til Álandseyja frá öðrum hlutum Finnlands þarftu að tollafgreiða ökutækið en ekki að greiða tollagjöld. Hins vegar þarf að greiða finnskan innflutningsvirðisaukaskatt. Þrátt fyrir að finnska bílasalan innheimti virðisaukaskatt af sölunni þarft þú engu að síður að greiða virðisaukaskatt í tengslum við tollafgreiðslu. Finnska bílasalan getur endurgreitt virðisaukaskattinn eftir á að fenginni ákvörðun um tollafgreiðslu. Finnska bílasalan getur einnig selt viðskiptavininum nýjan bíl á skattfrjálsu verði. Tollafgreiðsla á Álandseyjum er auðveldari í slíkum tilfellum. Nánari upplýsingar er að finna á vefsíðu skattayfirvalda um sölu ökutækis eða báts til Álandseyja.
Þegar þú kaupir nýtt ökutæki annars til Álandseyja frá öðru ESB-ríki, til dæmis Svíþjóð, þarf að tollafgreiða ökutækið en ekki þarf að greiða tollagjöld. Finnskur innflutningsvirðisaukaskattur er greiddur af ökutækinu. Þrátt fyrir að bílasalan innheimti virðisaukaskatt af sölunni þarf engu að síður að greiða innflutningsvirðisaukaskatt í tengslum við tollafgreiðsluna.
Þegar nýtt ökutæki er keypt til Álandseyja frá landi utan ESB, til dæmis Noregi, þarf að tollafgreiða það. Einnig þarf að greiða finnskan innflutningsvirðisaukaskatt og viðeigandi tollgjöld.
Nánari upplýsingar um tollafgreiðslu nýrra ökutækja á Álandseyjum er að finna á vefsíðu tollyfirvalda um ökutæki á Álandseyjum.
Skráning ökutækis
Þegar flutt er til Álandseyja með ökutæki gilda mismunandi skráningarferli eftir því hvort flutt er frá meginlandi Finnlands eða öðru landi og öðru norrænu landi. Mikilvægt er að vita að Álandseyjar tilheyra ekki skattasvæði ESB og því er tollur lagður á öll ökutæki sem þarf að skrá á Álandseyjum, óháð virði þeirra.
Umskrá þarf ökutæki hjá bifreiðastofnun (Fordonsmyndigheten) eins fljótt og auðið er eftir að varanlegum flutningi til Álandseyja er lokið og ökutækið hefur verið tollafgreitt. Eigandi ökutækisins þarf að tilkynna um fyrstu skráningu, umskráningu, afskráningu, eigendaskipti eða aðrar breytingar á eigendum.
Nánari upplýsingar um skráningu er að finna á vefsvæði Fordonsmyndigheten og í hlutunum hér að neðan.
Við skráningu finnsk ökutækis á Álandseyjum þarf meðal annars að afhenda Fordonsmyndigheten eftirfarandi skjöl:
- Frumrit skráningarvottorðs, bæði tæknilegan hluta (hluta 1) og skráningarhluta (hluta 2).
- Umsókn um tryggingu hjá tryggingafélagi sem starfar á Álandseyjum á pappír.
- Önnur skjöl á borð við ákvörðun um afgreiðslu frá tollyfirvöldum.
Nánari upplýsingar um umskráningu finnsks ökutækis á Álandseyjum er að finna á vefsíðu Fordonsmyndigheten.
Við skráningu erlends ökutækis og ökutækis frá norrænu landi á Álandseyjum þarf að gera eftirfarandi:
- Ef þú hyggst nota ökutækið áður en það er skráð þarftu að senda inn tilkynningu um notkun til skattyfirvalda og kaupa bílatryggingu.
- Þú þarft að tollafgreiða ökutækið hjá tollyfirvöldum og senda bifreiðarskattskýrslu til skattyfirvalda. Þegar bifreiðaskattur hefur verið greiddur færðu tilkynningu um skráningarleyfi.
- Þegar ökutækið hefur verið skráð þarf það að gangast undir skráningarskoðun. Skila verður erlendu bílnúmeraplötunum til Fordonsmyndigheten og skipta þeim út fyrir álenskar.
Ítarlegar upplýsingar um skráningu ökutækis frá öðru landi og nánari upplýsingar um skráningu ökutækja er að finna á vefsvæði Fordonsmyndigheten.
Ef þú dvelur tímabundið á Álandseyjum, til dæmis í sumarleyfi, þarftu ekki að skrá ökutækið eða tollafgreiða það. Ekki þarf heldur að skrá ökutæki sem eru skráð á Álandseyjum í öðru norrænu landi ef dvalið er í því landi í skamman tíma. Breytilegt er hve lengi má aka ökutæki sem er skráð í öðru landi.
Á Norðurlöndum þurfa ökutæki alltaf að hafa gilda tryggingu. Ef flytja á með ökutæki getur verið gott að athuga trygginguna. Sum tryggingafélög tryggja ekki ökutæki ef eigandinn er enn búsettur í öðru landi.
Lesa má nánari upplýsingar um hvað gildir um ferðamenn sem ferðast með eigin bíl til Finnlands og Álandseyja á vefsíðu tollyfirvalda.
Skattar og ökutæki
Á Álandseyjum sjá tveir aðilar um skattlagningu ökutækja. Ökutækjaskatti (fordonsskatt) er oft ruglað saman við bifreiðaskatt (bilskatt), en þetta eru tveir ólíkir skattar. Bifreiðaskattur er almennt aðeins greiddur einu sinni, þegar ökutæki er tekið í notkun í fyrsta sinn eða skráð í Finnlandi og á Álandseyjum, en ökutækjaskatturinn er greiddur fyrir hvern þann dag sem eigandi á ökutæki.
Í Finnlandi og á Álandseyjum er bifreiðaskattur lagður á öll ökutæki sem eru skráð eða tekin í notkun í fyrsta sinn. Þegar þú kaupir til dæmis ökutæki til Álandseyja frá öðru landi þarftu að greiða bifreiðaskatt innan fimm daga frá staðfestingu á tilkynningu um notkun ökutækis. Bifreiðaskatturinn er gefinn upp og greiddur til skattyfirvalda. Nánari upplýsingar um bifreiðaskatt er að vinna á vefsíðu skattyfirvalda.
Ökutækjaskattur er greiddur fyrir hvern þann dag sem einstaklingur hefur umráð yfir eða á ökutæki. Skráður eigandi ökutækisins ber alltaf skattskyldu og ef skatturinn er ógreiddur verður bannað að nota ökutækið.
Það er svæðisskrifstofa Álandseyja (Statens Ämbetsverk) sem hefur umsjón með ökutækjaskatti á Álandseyjum og á vefsíðu hennar er hægt að velja „Fordonsskatt“ til að fá nánari upplýsingar um greiðslur, skattatímabil og fleira.
Skoðun ökutækis
Fordonsmyndigheten ber ábyrgð á skoðun bifreiða og eftirvagna á Álandseyjum. Ökutæki eru skoðuð til að tryggja að þau séu örugg í umferðinni.
Ef þú flytur til Álandseyja með ökutæki þitt eða kaupir ökutæki frá Norðurlöndum eða öðru landi þarf ökutækið að undirgangast skráningarskoðun. Sú skoðun er framkvæmd eftir að skráningarleyfi hefur verið veitt. Ekki er þó þörf á skráningarskoðun ef ökutækið kemur frá meginlandi Finnlands. Fyrir skráningarskoðun (registreringsbesiktning) þarf að athuga hvort ökutækið þurfi að fara í gegnum umferðarskoðun (kontrollbesiktning). Það er gert með því að kanna hvenær síðasta skoðun var framkvæmd og bera saman við skoðunartímabil á Álandseyjum. Bóka og framkvæma má skráningarskoðun og umferðarskoðun á saman tíma.
Nánari upplýsingar um tíma milli skoðana, hvernig skoðun er bókuð, hvað er athugað við skoðun og fleira er að finna á vefsíðu Fordonsmyndigheten.
Ökutækjatryggingar
Ökutækjatryggingar eru skyldutryggingar á Álandseyjum og allir sem slasast í umferðinni eiga rétt á bótum samkvæmt lögum um ökutækjatryggingar. Samkvæmt lögunum tekur skyldan til að tryggja ökutæki gildi um leið og það er keypt eða notað á Álandseyjum. Ef fyrri eigandi ökutækisins var með ökutækistryggingu gildir ábyrgð tryggingafélagsins áfram fyrir nýja eigandann í 7 daga eftir eigendaskipti. Tilkynna skal Fordonsmyndigheten um eigendaskiptin innan þessara 7 daga. Sjá nánar á vefsíðu Fordonsmyndigheten.
Lesa má nánar um hvaða tryggingafélög bjóða upp á skyldubundnar og frjálsar bifreiða- og ökutækjatryggingar á síðunni „Tryggingar á Álandseyjum“.
Umferðarreglur á Álandseyjum
Sérstög lög um umferðarreglur gilda á Álandseyjum. Hér að neðan sumar af algengustu og mikilvægustu umferðarreglunum á Álandseyjum. Heildarútgáfu umferðarlaganna er að finna á vef landsstjórnar Álandseyja.
- Almennur hraði: Á Álandseyjum eru ýmis umferðarmerki með hraðamerkingum. Í þéttbýli má ekki aka á meiri en 50 km/klst. hraða. Í dreifbýli má aka á meiri en 70 km/klst. hraða nema annar hraði sé gefinn til kynna með umferðarmerki.
- Notkun bílbelta: Skylda er að nota bílbelti, einnig í til dæmis rútum og leigubílum. Við flutning barns sem er lægra en 135 sentímetrar skal nota barnabílstól, sætispúða eða annað öryggisbúnað fyrir börn. Börn yngri en fjögurra ára eiga að ferðast í barnabílstól sem snýr aftur á bak.
- Notkun vetrardekkja: Nota skal vetrardekk í vetrarfærð. Vetrardekk geta verið negld eða ónegld. Nota má nagladekk, snjókeðjur eða sambærilegan búnað sem ekki skemmir yfirborð vega á öllum gerðum ökutækja frá 15. október til og með 15. apríl. Einnig má nota nagladekk á öðrum tímum ársins ef vetrarfærð er á vegum.
- Bílastæði: Bílum er alltaf lægt hægra megin miðað við akstursstefnu. Í einstefnugötum má einnig leggja vinstra megin ef umferðarmerki gefa ekki annað til kynna. Ef bílastæðatími er takmarkaður skal nota bílastæðaskífu eða sambærilegt. Tíminn á bílastæðaskífunni á að vera stilltur á næstu heilu eða hálfu klukkustund reiknað frá byrjun bílastæðatímans.
- Áfengismagn: Á Álandseyjum er bannað að aka undir áhrifum áfengis. Hámark fyrir ölvunarakstur er 0,5 prómill og 0,8 fyrir alvarlegan ölvunarakstur.
- Aðalljós: Kveikt verður að vera á aðalljósum eða dagljósum ökutækis, einnig á daginn. Þegar ekið er í myrkri, í rökkri eða þegar skyggni er slæmt vegna veðurskilyrða eða af annarri ástæðu skal bæði nota aðalljós og afturljós.
Umferðarbrot
Ef umferðarlögum er ekki fylgt getur það leitt til viðvörunar eða sektar. Sektir vegna umferðarbrota eru veittar af lögreglunni á Álandseyjum, meðal annars við umferðareftirlit, og renna síðan til Álandseyja. Upphæð sektar fyrir umferðarbrot er alltaf föst og fyrir einstök brot er hún 20 til 200 evrur. Á meðal algengra umferðarbrota eru hraðakstur, að fylgja ekki umferðarmerkjum, notkun farsíma við akstur og fleira.
Fljótandi farkostir
Frístundabátar hafa frá 2,5 til 24 metra langan skrokk en sjósleðar eru styttri en 4 metrar og eru knúnir af spýtihreyfli. Ef þú ert með lögheimili á Álandseyjum og átt fljótandi farkost sem þú notar á Álandseyjum þarftu að skrá hann hjá Fordonsmyndigheten ef hann uppfyllir eftirfarandi skilyrði:
- Utanborðsmótor yfir 115 kílóvöttum
- Innanborðsmótor eða innanborðsmótor með utanborðsdrifi yfir 300 kílóvöttum
Hafi báturinn kraftminni mótor þarf ekki að skrá hann. Nánari upplýsingar um skrána og hvaða gagna þarf að skila við skráningu er að finna á vefsíðu Fordonsmyndigheten:
Nánari upplýsingar
Á vefsíðum Info Norden er að finna upplýsingar um ökutæki annars staðar á Norðurlöndum og þær stofnanir sem leita skal til vegna spurninga.
Ef þú ert með spurningu eða ef þú hefur rekist á hindrun í norrænu landi skaltu fylla út eyðublað okkar.
ATH: Ef spurningin þín varðar afgreiðslu tiltekins máls eða umsóknar eða annarra persónulegra mála skaltu hafa samband við viðkomandi yfirvald.