Leiðir til að vekja áhuga á Norðurlandaráðsþingi 2022

Selfie i Oslo
Photographer
norden.org/Magnus Fröderberg
Vilt þú taka þátt í að auka áhugann á #nrssession í ár? Þessi samskiptapakki veitir þér yfirsýn yfir samskiptavinnuna í tengslum við þingið. Einnig er hér að finna myndir, efni til deilingar, myndskeið, Twitter-föng og myllmerki.

Þetta getur þú gert:

1. Notaðu vefsíðu þingsins til að fá yfirsýn

Á vefsíðu þingsins er m.a. að finna hagnýtar upplýsingar, fréttir, fundardagskrá og aðra dagskrá þingsins.

2. Notaðu myllumerkin okkar

Taktu þátt í að skapa umræðu um norræn stjórnmál með því að nota myllumerkin okkar tvö: #nrsession og #nrpol.

3. Færðu umræður um þingið yfir á aðra samfélagsmiðla

Fylgdu stjórnmálamönnum og ráðherrum á Twitter:

4. Skráðu þig á viðburðinn okkar

Með því að skrá þig á Facebook-viðburðinn okkar færðu upplýsingar um þingið sem þú getur deilt áfram til tengiliða þinna á Facebook. Inni í viðburðinum geturðu einnig séð valdar beinar útsendingar frá þinginu:

5. Deildu efni um þingið

Einföld leið til að vekja athygli á Norðurlandaráðsþinginu er að dreifa fréttum, myndefni og myndskeiðum sem við höfum útbúið fyrir þingið.

Meira efni verður unnið meðan á þinginu stendur og bætt í möppurnar hér fyrir ofan.

6. Taktu og dreifðu myndum af þinginu

Deildu þínum eigin myndum og myndskeiðum frá þinginu á Instagram og öðrum samfélagsmiðlum ásamt myllumerkinu okkar #nrsession. Ljósmyndarar frá okkur verða líka á staðnum og taka myndir af þinginu og verðlaunahátíðinni. Myndirnar má nota að vild og verður þeim safnað saman hér:

7. Fylgdu okkur á samfélagsmiðlum

Fylgdu okkur á samfélagsmiðlum:

8. Horfðu á beinar útsendingar frá þinginu og skrifaðu athugasemdir

Við sendum beint frá öllum þingfundum: