Grænland vísar veginn: Norræn tækifæri í sjálfbærri ferðaþjónustu
Nordisk Råds udvalg for vækst og udvikling besøger Grønland og bliver klogere på landets turismeudvikling
Norræna hagvaxtar- og þróunarnefndin heimsækir Grænland og kynnir sér þróun ferðaþjónustu í landinu.
Í júní ár hvert ferðast nefndin um Norðurlönd til að sækja sér innblástur og innsýn í pólitísk störf sín. Í ár lá leiðin til Grænlands þar sem 15 þingmann frá sex norrænum löndum hittu heimamenn sem vinna að þróun ferðaþjónustunnar á stærsta eyjarsamfélagi heims.
Vaxandi atvinnugrein
Tölurnar tala sínu máli: 5,5 prósent af heildarvirðisauka landsins koma frá ferðaþjónustu.
„Sjávarútvegur hefur verið algerlega ráðandi atvinnugrein á Grænlandi. Nú er ferðaþjónusta einnig farin að gegna stóru og mikilvægu hlutverki,“ sagði Naaja H. Nathanielsen, ráðherra atvinnumála, orkumála, hráefna, dómsmála og jafnréttismála sem hitti nefndina.
Með fyrstu lögum Grænlands um ferðaþjónustu sem tóku gildi árið 2025 var mörkuð stefna í átt að sjálfbærri þróun. Leyfiskröfur og svæðisskipting eru meðal þeirra verkfæra sem eiga að tryggja að vöxtur ferðaþjónustunnar verði í samræmi við burðarþol náttúru og samfélags.
Þörf á hæfni og samvinnu
Mikil tækifæri eru til staðar í grænlensku atvinnulífi, en jafnframt miklar áskoranir. Christian Keldsen, framkvæmdastjóri Grønlands Erhverv, benti á skort bæði á fjármagni og hæfu vinnuafli:
„Við þurfum fjárfestingar í innviðum og hæfni til að styðja við þróunina. Það er mikil áskorun að fá nægilegt hæft vinnuafl í grein sem vex hratt.“
Á sama tíma lagði Jens R. Lauridsen, framkvæmdastjóri Greenland Airports, áherslu á að ferðamenn séu ekki bara gestir heldur geti þeir einnig stutt við þróun samfélagsins: „Við eigum að líta á ferðamenn sem auðlind sem gerir það eftirsóknarvert að búa, lifa og starfa hér.“
Staðbundið eignarhald og aðkoma almennings
Hjá Visit Greenland er unnið markvisst að því að fá íbúa til þátttöku í þróuninni.
„Við höfum mikinn áhuga á að skilja hvaða áhrif ferðaþjónustan hefur á íbúana og hverjar óskir þeirra og þarfir eru,“ sagði Linda Kleist sem ber ábyrgð á þróun áfangastaða og skemmtiferðaskipa.
Norrænn ávinningur ávinningur af grænum umskiptum
Á sumarfundinum í Nuuk fengu nefndarmenn einnig að sjá með eigin augum hvernig unnið er að þróun ferðaþjónustunnar á Grænlandi. Nefndin ferðaðist með bát til Qooqqut og heimsótti þar veitingastaðinn Qooqqut Nuan sem er gott dæmi um þá grænu þróun sem á sér stað í grænlenskri ferðaþjónustu. Þetta lagði grunn að samtali um norrænt samstarf þvert á landamæri.
„Við höfum séð bæði metnað og áskoranir í návígi,“ sagði Kjell-Arne Ottosson, formaður nefndarinnar frá Svíþjóð, að fundi loknum. „Grænlenska dæmið sýnir hversu mikilvægt það er að hafa sjálfbærni, bæði hvað varðar náttúru, hagvöxt og samfélög, í huga strax frá byrjun. Þar getum við á Norðurlöndum lært hvert af öðru.“