Um bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs

Vinnare av Nordiska rådets Litteraturpris 2017
Photographer
Magnus Fröderberg/norden.org
Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs eiga að stuðla að því að auka áhuga á bókmenntum og tungumáli nágrannaþjóðanna. Þau eru veitt um leið og önnur verðlaun Norðurlandaráðs, barna- og unglingabókaverðlaun, tónlistarverðlaun, kvikmyndaverðlaun og umhverfisverðlaun.

Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs hafa verið veitt síðan 1962 og eru veitt fagurbókmenntaverki sem er samið á einu af norrænu tungumálunum. Með fagurbókmenntaverki er í þessu sambandi átt við ljóðlist, prósa og leikrit sem uppfylla ítrustu kröfur um bókmenntaleg og listræn gæði.

Eins og fram kemur í samþykktum fyrir bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs er markmið verðlaunanna að auka áhuga á menningarsamkennd Norðurlanda og að veita viðurkenningu fyrir framúrskarandi starf á sviði lista. Verðlaunin eiga að stuðla að því að vekja athygli á og marka samstarfi Norðurlanda stöðu.

Norræn dómnefnd velur verðlaunahafann

Sameiginleg norræn dómnefnd velur viðtakanda bókmenntaverðlaunanna Í dómnefndinni sitja tveir fulltrúar frá hverju hinna norrænu ríkja.

Annar finnski fulltrúinn skal vera finnskumælandi og hinn skal vera sænskumælandi. Fulltrúar í dómnefnd skulu hafa góða þekkingu á bókmenntum í heimalandi sínu og þekkja bókmenntir nágrannaþjóðanna eins og kostur er.

Ef verk eru tilnefnd frá Færeyjum, Grænlandi, Álandseyjum eða samíska tungumálasvæðinu þá starfa fulltrúar þeirra tímabundið í dómnefnd.

Landsbundnar dómnefndir tilnefna verkin

Fulltrúar landanna og varamaður mynda dómnefnd sem tilnefnir að hámarki tvö bókmenntaverk. Í síðasta lagi þremur vikum fyrir afhendingu verðlaunanna þarf norræna dómnefndin að tilkynna framkvæmdastjóra Norðurlandaráðs um ákvörðun sína og rökstuðning.

Verðlaunaveiting á þingi Norðurlandaráðs

Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs eru veitt ásamt öðrum verðlaunum á sviði barna- og unglingabóka, tónlistar, kvikmynda og umhverfismála á verðlaunaafhendingu Norðurlandaráðs í tengslum við þing Norðurlandaráðs á haustin. Norræna húsið í Reykjavík hefur umsjón með verlaununum og þau nema eins og önnur verðlaun Norðurlandaráðs 300.000 dönskum krónum (um 40.300 evrum).