Eindreginn stuðningur við Grænland frá Norðurlandaráði

31.03.25 | Fréttir
Grønland
Ljósmyndari
Ken Mathiasen, Unsplash
Forsætisnefnd Norðurlandaráðs lýsir yfir eindregnum og skilyrðislausum stuðningi við grænlensku þjóðina og ófrávíkjanlegan rétt hennar til yfirráða yfir eigin landi og framtíð. Það er þjóðréttarleg grundvallarregla sem ekki má hvika frá. 

Í dag, 31. mars 2025, samþykkti forsætisnefnd Norðurlandaráðs eftirfarandi yfirlýsingu:

Forsætisnefnd Norðurlandaráðs lýsir yfir eindregnum og skilyrðislausum stuðningi við grænlensku þjóðina og ófrávíkjanlegan rétt hennar til yfirráða yfir eigin landi og framtíð. Það er þjóðréttarleg grundvallarregla sem ekki má hvika frá.  

Þann 15. janúar 2025 lýsti forseti Norðurlandaráðs því yfir að grænlenska þjóðin eigi að ráða framtíð Grænlands. Í dag endurtökum við þau skilaboð af auknum krafti. Grænland er mikilvægur meðlimur hinnar norrænu fjölskyldu og norræns samstarfs. 

Grænland og Danmörk, ásamt Færeyjum, mynda ríkissamband og eru nánir bandamenn Bandaríkjanna. Grænland og Danmörk hafa ítrekað lýst yfir vilja til aukins samstarfs við Bandaríkin um öryggi á norðurslóðum og á fleiri sviðum.

Öll norrænu löndin eru nú aðilar að NATO og öll hafa sterk tengsl við Bandaríkin, jafnt þegar kemur að öryggismálum sem menningu og efnahag. Þá eru jafnframt sterk ættartengsl á milli margra bandarískra ríkisborgara og ríkisborgara norrænu landanna.

Við viljum gera það sem við getum til að efla samstarfið við Bandaríkin en það verður að grundvallast á virðingu fyrir friðhelgi yfirráðasvæðis landanna, sjálfsákvörðunarrétti og lýðræðislegum gildum.

 

Norðurlandaráð er opinber samstarfsvettvangur þjóðþinga Norðurlanda. Ráðið var stofnað árið 1952 og er skipað 87 fulltrúum frá Danmörku, Finnlandi, Færeyjum, Grænlandi, Íslandi, Noregi, Svíþjóð og Álandseyjum.