EXPO 2025: Japan, Evrópa og Norðurlönd í samstarfi um hringrásarnálgun

29.09.25 | Fréttir
Ljósmyndari
Jenny Valind / Norden.org
Kóbalt í rafhlöður, kopar fyrir rafeindatækni, sjaldgæf jarðefni í vindmyllur. Án nauðsynlegra hráefna verða grænu umskiptin ekki að veruleika. Aðgengi er þó ógnað af stefnutengdum og landpólitískum hindrunum. Niðurstaðan í norræna skálanum á heimssýningunni EXPO 2025 í Osaka var að lausnin fælist í auknu samstarfi þvert á virðiskeðjur.

„Hringrásarhagkerfið er ekki lengur valkostur heldur nauðsynleg forsenda grænna umskipta og kerfislægra breytinga. Við verðum að vinna saman þvert á atvinnugreinar og landsvæði til að tryggja að auðlindirnar dugi fyrir komandi kynslóðir,“ sagði Niina Aagaard, yfirmaður upplýsinga- og samskiptasviðs Norrænu ráðherranefndarinnar á ESB-deginum um nauðsynleg hráefni í norræna skálanum á EXPO 2025 í Osaka í Japan. Jafnframt beindi Aagaard sjónum að framtíðarsýn norrænu forsætisráðherranna um að Norðurlönd verði sjálfbærasta og samþættasta svæði heims árið 2030. Einnig var lögð áhersla á að vinnsla mikilvægra hráefna þurfi í mun ríkari mæli að koma úr endurnotkun til að tryggja sjálfbæran og sanngjarnan aðgang að auðlindum.   

Hringrásarhagkerfi sem drifkraftur kerfisbreytinga 

Umræður fjölmargra gesta EXPO undirstrikuðu að þörf sé á nýjum viðskiptalíkönum til að ná fram varanlegum breytingum. Hanna þarf vörur þannig að þær endist lengur, þjónustulíkön þurfa að koma í stað línulegs neyslumynsturs og nota má opinber innkaup til þess að ýta undir og flýta umskiptunum. Í þessu sambandi var sérstaklega bent á Norðurlönd sem mikilvægan aðila. Með tæknikunnáttu, pólitískum vilja og öflugu samstarfi geti norrænu löndin tengt saman Japan, Norðurlönd og Evrópu.  

Norðurlönd búa yfir innsýn og eru fús að miðla henni

Norræna nýsköpunarmiðstöðin, sem fjármögnuð er af Norrænu ráðherranefndinni, vinnur með atvinnulífinu að því að ýta undir hringrásarhagkerfið. Nýverið hefur stofnunin birt þrjár skýrslur sem varpa ljósi á þau tækifæri sem fólgin eru í endurvinnslu og endurnotkun mikilvægra hráefna. Í skýrslunum er bent á að mikilvægasta stefnumarkandi skrefið sé að styðja og þróa virðiskeðjur með endurunnið og endurnýtt efni og settar eru fram tillögur að því hvernig megi gera það. Norræna nýsköpunarmiðstöðin vinnur jafnframt að stofnun Nordic Critical Raw Material Centre, miðlægs norræns vettvangs fyrir endurvinnslu og nýsköpun. Markmiðið er að að minnsta kosti 50 prósent af nauðsynlegu hráefni verði framvegis endurunnið eða endurnýtt.

Margir erlendir gestir viðstaddir

Á viðburðinum voru komnir saman aðilar úr bíla- og rafeindaiðnaði ásamt sérfræðingum í hringrásarhagkerfi og sjálfbærri námuvinnslu. Á dagskránni voru erindi og umræður um málefni á borð við svokallað borgarnám (e. urban mining), endurvinnslu, vörupassa, hringrásarmiðuð rekstrarlíkön og sjálfbæra vinnslu hráefna. Á meðal fyrirlesara voru fulltrúar frá Toyota, Panasonic, Holland Circular Hotspot, Generation Climate Europe og Keidanren en það var Janez Potočnik, aðstoðarforstjóri International Resource Panel (IRP), sem átti lokaorðið með stafrænu erindi um þær kerfislegu breytingar sem nauðsynlegar eru til þess að tryggja megi sjálfbært aðgengi að nauðsynlegum auðlindum. Nordic Circular Hotspot hélt utan um viðburðinn í tengslum við EU Circular Days.