Formennska Finnlands og Álandseyja í Norrænu ráðherranefndinni 2025: Sameinuð og sterk Norðurlönd

29.10.24 | Fréttir
Petteri Orpo och Katrin Sjögren
Ljósmyndari
Magnus Fröderberg/Norden.org
Finnland og Álandseyjar gegna formennsku í Norrænu ráðherranefndinni árið 2025. Formennskuáætlun ársins 2025 var kynnt á Norðurlandaráðsþingi í Reykjavík.

Í sameiginlegri formennskuáætlun Finnlands og Álandseyja er lögð áhersla á þrjú mikilvæg málefni: Í fyrsta lagi velferð barna og ungmenna, í öðru lagi aukið almennt öryggi og í þriðja lagi aukna samkeppnishæfni.

Petteri Orpo, forsætisráðherra Finnlands

Réttindi barna og ungmenna

Finnland og Álandseyjar munu leggja áherslu réttindi á barna og ungmenna, velferð og inngildingu á Norðurlöndum. Í formennskuáætluninni er bent á að enn ber að halda samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi barna á lofti og fylgja honum. Börn eiga rétt á að fá þá vernd og umönnun sem þau þurfa á að halda og í formennskuáætluninni er kallað eftir kerfisbundinni eftirfylgni með vinnu að málefnum barna og ungmenna.

Almannavarnir og almennt öryggi

Í formennskuáætluninni er fjallað um almannavarnir sem sífellt mikilvægara samstarfssvið sem teygir sig yfir mörg fagsvið Norrænu ráðherranefndarinnar. Bent er á að ríkt fjölmiðlafrelsi og tjáningarfrelsi norrænu landanna, ásamt fjölmiðlalæsi íbúanna og traustu réttarríki, skapar góðar forsendur til þess að standast utanaðkomandi áhrif. Stefnt er að því að vinna að altækum og umfangsmiklum viðbúnaði við háska af ýmsum toga og fjölþátta ógnum. Álandseyjar, Færeyjar og Grænland þurfa einnig að fá tækifæri til að taka þátt í þessari vinnu.

Fyrir Álandseyjar er mikilvægt að vera hluti af samstarfi um almannavarnir. Við erum mitt í Eystrasaltinu og það er mikilvægt að við séum samþættur hluti af norrænum almannavörnum.

Karin Sjögren, landstjóri Álandseyja

Aukin samkeppnishæfni

Í formennskuáætluninni segir að efnahagsleg staða og samkeppnishæfni Norðurlandaþjóðanna með tilliti til annarra þjóða ráði öllu um þróun atvinnuveganna og velferð samfélagsins. Norræn fyrirtæki eiga eins og áður að hafa bolmagn og getu til að endurnýja sig og gera sig gildandi á alþjóðlegum samkeppnismarkaði. Vinna þarf að þessu með því að efla samstarf innan sviða á borð við nýsköpun og sjálfbærar lausnir.

Lokasprettur Framtíðarsýnar 2030

Norræna ráðherranefndin vinnur almennt að því að uppfylla framtíðarsýn forsætisráðherranna fyrir árið 2030 um að Norðurlöndin verði sjálfbærasta og samþættasta svæði heims. Síðasta og mikilvægasta tímabil þessarar vinnu er nú að hefjast, er samstarfsráðherrar hinna ýmsu ráðherranefnda fá það markmið fyrir tímabilið 2025–2030 að gera framtíðarsýnina að veruleika. Í formennskuáætluninni er lögð áhersla á stefnumarkandi áherslusviðin þrjú um græn, samkeppnishæf og félagslega sjálfbær Norðurlönd verði áfram mikilvægustu vörðurnar í norrænu samstarfi.