Norrænt sjónarhorn á umræðu í Eystrasalti um menntun, öryggi og varnir

21.01.26 | Fréttir
Parliamentarians discussing at a table
Ljósmyndari
Erik Peinar
Á fundinum í Tartu, sem fól í sér heimsóknir í varnarmálaskóla og miðstöð stríðs- og hamfaralækninga, var fjallað um þekkingarmiðlun og sameiginlegar lausnir á þeim áskorunum sem Eystrasaltsríkin standa frammi fyrir.

Guðmundur Ari Sigurjónsson, nýr formaður norrænu þekkingar- og menningarnefndarinnar, sat fund menntamálanefndar, vísinda- og menningamálanefndar og öryggis- og varnarmálanefndar Eystrasaltsþingsins innan ramma samstarfsins milli Norðurlandaráðs og Eystrasaltsþingsins.

 

Á fundinum í Tartu, sem fól í sér heimsóknir í varnarmálaskóla og miðstöð stríðs- og hamfaralækninga, var fjallað um þekkingarmiðlun og sameiginlegar lausnir á þeim áskorunum sem Eystrasaltsríkin standa frammi fyrir. Tvö mál voru í brennidepli: þróun sameiginlegra menntaáætlana á sviði öryggis- og varnarmála og hvernig efla megi rannsóknir á sviði hernaðar- og varnarmála með svæðisbundnu samstarfi.

 

Formennskuáætlun Finnlands og Álandseyja í Norðurlandaráði 2026 setur almennt öryggi í brennidepil norræna samstarfsins. Í áætluninni er lögð áhersla á mikilvægi þess að efla getu Norðurlanda til að sjá fyrir, takast á við og jafna sig eftir krísur með nánara samstarfi um viðbúnaðar- og varnarmál, heilbrigðismál og afhendingaröryggi, mikilvæga innviði auk sálræns viðnámsþróttar, lýðræðis og trausts.

Fyrir okkur í þekkingar- og menningarnefndar Norðurlandaráðs gegna menntakerfin lykilhlutverki í áætlunum um almennt öryggi. Hversdagurinn í skólum okkar og menntastofnunum gegnir einnig mikilvægu hlutverki við að efla viðbúnað og viðnámsþrótt samfélagsins.

Guðmundur Ari Sigurjónsson

Umræðurnar um varnarmálarannsóknir tengdust þörfinni fyrir að samræma aðgerðir í Eystrasaltsríkjum við víðtækara svæðisbundið og alþjóðlegt samstarf, svo sem varnarmálarannsóknir ESB, áætlanir tengdar NATO og norrænt varnarmálasamstarf. Markmiðið er að tryggja að rannsóknir stuðli með beinum hætti að stefnumótun og uppbyggingu á getu.

 

Fundir á borð við þennan sýna vel hvers vegna samstarfið milli Norðurlandaráðs og Eystrasaltsþingsins er svo mikilvægt, sérstaklega nú, þegar öryggi á svæðinu á undir högg á sækja. Með reglulegum samskiptum og sameiginlegum umræðum eflum við samráð milli Norðurlanda og Eystrasaltsríkja og aukum sameiginlegan skilning á öryggisáskorunum á Eystrasaltssvæðinu.

Tengiliður