Formennskuáætlun Finnlands og Álandseyja í Norðurlandaráði 2026: Almennt öryggi á Norðurlöndum
Ville Väyrynen og Kim Berg voru formlega kjörnir forseti og varaforseti Norðurlandaráðs á Norðurlandaráðsþinginu 2025 í Stokkhólmi.
„Heimsmyndin hefur breyst og því þurfa Norðurlönd að efla viðnámsþrótt sinn. Í formennskutíð okkar verður markmiðið skýrt: Að styrkja það sem sameinar okkur – traust, samvinnu og sameiginleg gildi. Þegar við viðhöldum öflugum tengslum á milli fólks, þjóða og gilda eru okkur allir vegir færir. Í því felst hinn sanni styrkur Norðurlanda. Við hlökkum til formennskunnar,“ segir Ville Väyrynen, forseti Norðurlandaráðs og formaður finnsku landsdeildarinnar.
Á tímum sem einkennast af geópólitískri ólgu, fjölþáttaógnum og auknum samfélagslegum veikleikum mun formennskuáætlunin efla getu Norðurlanda til að koma í veg fyrir og takast á við krísur. Lögð er áhersla á nánara norrænt samstarf um viðbúnaðar- og varnarmál, heilbrigðismál og afhendingaröryggi, mikilvæga innviði auk sálræns viðnámsþróttar, lýðræðis og trausts. Markmiðið er samhentari og sterkari Norðurlönd sem eru betur í stakk búin að takast á við áskoranir og krísur framtíðarinnar.
Yfirskrift formennskuáætlunar Finnlands og Álandseyja í Norðurlandaráði 3036 er Almennt öryggi á Norðurlöndum. Finnland tók við formennsku í Norðurlandaráði þann 1. janúar 2026 og landsdeildir Finnlands og Álandseyja í ráðinu unnu saman að gerð formennskuáætlunarinnar. Ville Väyrynen og Kim Berg gegna embættum forseta og varaforseta Norðurlandaráðs á formennskutímanum.