Fyrir öruggar, sjálfbærar og viðnámsþolnar Norðurslóðir – hápunktar Hringborðs Norðurslóða 2024
Ljósmyndari
Eyþór Árnason/norden.org
Á tímum þegar reynt er á þolmörk kerfa plánetunnar og alþjóðastofnana er norrænt samstarf á Norðurslóðum mikilvægara en nokkru sinni fyrr.
Norræna ráðherranefndin, ýmsar norrænar stofnanir og Norðurlandaráð voru áberandi á Hringborði Norðurslóða þetta árið. Hringborð Norðurslóða hefur á skömmum tíma unnið sér sess sem mikilvægasti vettvangur samræðna og samvinnu á Norðurlóðum. Hér héldum við 11 viðburði, bæði á ráðstefnustaðnum og annars staðar, sem sýndu hvernig Norðurlönd geta unnið saman að því að tryggja öryggi, sjálfbærni og viðnámþol í framtíðinni á Norðurslóðum.
Það er mikilvægt að vera hér á Hringborði Norðurslóða til að taka á þeim málefnum sem snerta norrænar Norðurslóðir og til að eiga samtöl og finna lausnir sem við getum unnið að í framtíðinni, segir Anne-Katrine Brandt Olsen, aðalráðgjafi Norrænu ráðherranefndarinnar.