Hér er listinn: 71 tillaga að tilnefningum til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2025

28.05.25 | Fréttir
Ljósmyndari
James Wheeler, unsplash
Alls barst 71 tillaga um aðila sem vinna að grænum umskiptum til að tilnefna til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2025. Hér er listinn í heild.

Tillögurnar koma víðs vegar að á Norðurlöndum og veita innsýn í græn verkefni á svæðinu í tengslum við þema ársins 2025, þáttur borgarasamfélagsins í grænum umskiptum.

Öllum er frjálst að senda inn tillögur að tilnefningum til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs og hægt er að stinga upp á bæði einstaklingum, verkefnum, fyrirtækjum og samtökum sem vinna að sjálfbærari framtíð.

Tillögurnar sem bárust fyrir árið 2025 spanna allt frá hringrásarlausnum á Grænlandi til grænna nágrannasamfélaga í Kaupmannahöfn og á meðal þeirra eru bæði samtök, fyrirtæki og einstaklingar.

Tilkynnt um það hvaða tillögur verða að opinberum tilnefningum þann 27. júní í tengslum við Almedalsvikuna í Svíþjóð. Verðlaunahafinn fær afhenta verðlaunastyttu við athöfn á þingi Norðurlandaráðs í Stokkhólmi í október 2025. Verðlaunaféð nemur 300 þúsundum danskra króna. Þema umhverfisverðlaunanna er mismunandi frá ári til árs og í ár er sjónum beint að framlagi borgarasamfélagsins til grænna umskipta.

Hér má lesa nánar um þema ársins (smellið til að lesa)

Þema ársins, sem er Þáttur borgarasamfélagsins í grænum umskiptum, beinir kastljósinu að mikilvægi þess að allir taki þátt í grænu umskiptunum, allt frá grasrótarhreyfingum til stórra samvinnuverkefna. Raunverulegar og varanlegar breytingar verða aðeins gerðar með því að almenningur, samtök og aðilar nærsamfélagsins verði hluti af lausninni og geti gripið til aðgerða.

Án þátttöku almennings í náttúru- og umhverfismálum er erfitt að búa í haginn fyrir sjálfbæra framtíð. Allir hlutar samfélagsins leika mikilvægt hlutverk þegar kemur að því að berjast gegn loftslagsbreytingum, sinna hinum grænu umskiptum og taka nauðsynleg skref til að verja, viðhalda og endurheimta vistkerfi.

Þegar við sem samfélag stöndum saman og vinnum að sameiginlegum markmiðum getum við náð miklum árangri á stuttum tíma. Tíminn er naumur og til þess að snúa þróuninni við og tryggja sjálfbæra framtíð þarf virkt og öflugt borgarasamfélag á Norðurlöndum öllum.

Þátttaka getur verið af ýmsu tagi, t.d. þátttaka í félagasamtökum eða einstaklingsframtak sem stuðlar að sjálfbærni og þekkingu um umhverfismál. Ef við erum samstíga geta litlar breytingar á háttum og lífsstíl skilað miklum árangri.

Gott dæmi um það er hin vaxandi hreyfing á sviði svokallaðra lýðvísinda (citizen science), þar sem almennir borgarar leggja sitt af mörkum til vísindarannsókna, t.d. með því að fylgjast með fuglum eða fiðrildum eða berjast gegn ágengum tegundum. Slík verkefni hafa mikið gildi, bæði vegna þess að þau afla gagna og virkja fleiri til þess að taka þátt í grænu umskiptunum. Þau sýna hvernig allir, óháð bakgrunni, geta verið hluti af lausninni.

Hér má sjá allar tillögur að tilnefningum til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2025:

Svíþjóð

  • Sara Idenfors Västerbottenssåpa
  • Maria Wetterstrand
  • Researchers Desk
  • Urban Olsson & Fabric Forest
  • Dr. Jade Abir Bouledjouidja (Renasens AB)
  • Naturskyddsföreningen
  • Minesto
  • Håll Sverige Rent
  • EKOSKOG 
  • Svenska Turistföreningen
  • Lalaimpact
  • Ätbart
  • Klimatkollen
  • Skjutsgruppen
  • Sara Nilsson Lööv
  • Sandra Eriksson
  • ACAN Sverige

Álandseyjar

  • Ålands Natur och miljö
  • Peter Korpi
  • The ReGeneration 2030 Foundation
  • Bärkraft Åland

Danmörk

  • Aarhus Vindmøllelaug I/S
  • Signe Simonsen, Race for Oceans Technology
  • Carl Jacobsen
  • Grønne Nabofællesskaber
  • Isabelle Denaro (Make Impact Films)
  • Martin Ersted fyrir Båll & Brand
  • Kjeld Hansen, blaðamaður, líffræðingur og lífrænn bóndi
  • Plastic Change
  • Diana Saleh fyrir Rumett
  • Jane Kruse, forstöðukona Nordisk Folkecenter for vedvarende energi 
  • Thomas Sture Rasmussen fyrir verkefnið „Uge 17“.
  • Signe Wenneberg og Den Lille Grønne Avis
  • Jørgen Chemnitz Kristiansen
  • Hugsmiðjan Nyt Europa
  • Repair Café Danmark
  • Reiulf Ramstad Arkitekter

Noregur

  • Arild Halvorsen
  • Samstarfssamtökin World Saving Hustle
  • Skagerrakseilasen
  • Dýragarðurinn í Kristiansand Dyrepark fyrir rafræna fræðslu
  • Ronny Junge-Larsen fyrir vinnu sína að ESG hjá Danske Bank
  • Bente Roestad rithöfundur
  • Nordic Circular Hotspot
  • Astrid Falch Gilberg, Amanda Haugerø Carlson og Tine Angvik
  • Cynthia Reynolds
  • HM á skíðum í Þrándheimi 2025
  • Samskiptastofan Nr. 17 fyrir Green Camp
  • Sjøørret Sørlandet
  • Dyrevernalliansen
  • Samtökin Den Gjenfundne Tid
  • Greenpeace í Noregi

Finnland

  • Luonnonperintösäätiö
  • Tutkijaryhmä: Vihtari, Juutilainen, Pitkänen, Mäkelä og Raetsaari
  • Lauttasaari-Seura (Drumsö-Sällskapet ry)
  • Kimitoön Kommune
  • Óhagnaðardrifnu samtökin Akordi Oy 
  • Euphoria Film Oy
  • Juha Kauppinen, rithöfundur og líffræðingur
  • Compensate-säätiö
  • Maria Lindqvist, PhD

Grænland

  • Andala Lund, fjárbóndi
  • Minil Rosing, jarðfræðingur
  • Innovation South Greenland A/S í samstarfi við Siu-Tsiu og Hold Norge Rent

Ísland

  • María Ester Guðjónsdóttir fyrir sjálfbæra ferðamennsku
  • ALDIN gegn loftslagsvá
  • Stóri plokkdagurinn
  • Hreinni Hornstrandir
  • Ormhildur
  • Anna Borg Harðardóttir, leikskólakennari

Færeyjar

  • Hugla

Umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs voru fyrst veitt árið 1995 og markmiðið með þeim er að efla vitund um náttúru- og umhverfisvernd á Norðurlöndum.