Johnny Mogensen nýr framkvæmdastjóri NordForsk frá 2026
Norræna rannsóknaráðið, NordForsk, starfar í Osló og er stærsti fjármögnunaraðili fyrir rannsóknir undir Norrænu ráðherranefndinni. NordForsk fjármagnar og greiðir fyrir norrænu samstarfi um rannsóknir og innviði rannsókna ásamt innlendum fjármögnunaraðilum, með það að markmiði að gera Norðurlönd að leiðandi svæði á sviði rannsókna. Staða framkvæmdastjóra var auglýst til umsóknar og er ráðningarferlinu nú lokið.
Johnny Mogensen hlakkar til að hefja störf hinn 1. febrúar 2026:
Ég hlakka mikið til að taka við sem framkvæmdastjóri NordForsk. Það er mikill styrkur í norrænu samstarfi á sviði rannsókna og ég vil leggja mitt af mörkum til að NordForsk haldi áfram að styðja við hágæðarannsóknir sem skipta máli fyrir öll Norðurlönd. Um leið er mikilvægt að þróa samstarfið á þann hátt að við í fjárfestum sameiginlega í rannsóknum sem efla bæði rannsóknarumhverfið og veita Norðurlöndum rödd á alþjóðavettvangi.
Reynsla af rannsóknar-, nýsköpunar- og menntamálum heima og erlendis
Frá árinu 2002 hefur Johnny Mogensen gegnt ýmsum stöðum í dönsku mennta- og rannsóknastofnuninni og hefur auk þess verið sendifulltrúi í Brussel sem ráðgjafi landsdeildar Danmerkur í ESB og sérfræðingur hjá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins. Hann hefur mikla þekkingu á umhverfi rannsókna- og nýsköpunar í Danmörku og einnig á Norðurlöndum og í Evrópu.
Johnny Mogensen kemur úr starfi sem rannsóknar- og nýsköpunarfulltrúi Danmerkur í Boston.
„Við í stjórn NordForsk hlökkum til að starfa með nýjum framkvæmdastjóra. Johnny Mogensen hefur þá stjórnunarreynslu og þá innsýn í pólitískan og faglegan þátt rannsóknarmála sem þarf til að treysta og þróa stöðu NordForsk sem lykilaðila í rannsóknasamstarfi og fjármögnun á Norðurlöndum,“ segir Annika Sølvará, starfandi stjórnarformaður NordForsk.
Karen Ellemann framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar býður Johnny Mogensen velkominn til starfa.
Helstu samfélagslegu áskoranir á borð við umhverfis- og loftslagsbreytingar, nýja tækni og samfélagslegt öryggi og viðbúnað sýna að þörf er á öflugu og skýru norrænu rannsóknarsamstarfi. Ég hlakka til að vinna með Mogensen frekar að þessum málum og vil einnig þakka Arne Flåøyen fyrir hans traustu vinnu. NordForsk er sterkur fulltrúi fyrir gildi norræns samstarfs og mikilvægur þáttur í því að gera Norðurlönd að leiðandi rannsóknarsvæði.
Starfstíma Arne Flåøyens lýkur
Johnny Mogensen mun taka við keflinu frá Arne Flåøyen, sem hefur verið framkvæmdastjóri NordForsk síðan í janúar 2018. NordForsk hefur vaxið og fest sig í sessi sem traustur og faglegur vettvangur fyrir norrænt rannsóknasamstarf, með skýran virðisauka fyrir innlenda rannsóknarsjóði og rannsóknarsamfélög á Norðurlöndum, í Eystrasaltsríkjunum og á alþjóðavettvangi. Þetta hefur meðal annars birst í stórum útboðum sem tengjast grænum umskiptum, málefnum norðurslóða, gervigreind og samfélagsöryggi.