Nýr framkvæmdastjóri NordGen – Lene Krøl Andersen tekur til starfa í mars
Nýi framkvæmdastjórinn hefur góða reynslu af vísindalegum stjórnunarstörfum og er með framtíðarsýn um það hvernig beri að efla NordGen sem leiðandi miðstöð erfðafræðilegs fjölbreytileika á sviði landbúnaðar, skógræktar og dýraræktar. Verkefni Lene Krøl Andersen verður að styrkja enn frekar sterka stöðu NordGen sem genabanki og erfðaauðlindaleg þekkingarmiðstöð og hún hlakkar til að tryggja sjálfbæra varðveislu og aðgengi fyrir komandi kynslóðir:
Ég hef alltaf brunnið fyrir norrænu samstarfi og ég tók þátt í að stofna Svalbard Global Seed Vault á sínum tíma. Þær erfðaauðlindir sem við eigum frá fyrri tíð eru að mínu mati ómissandi þáttur í skapa loftslagsþolnari líffræðilega fjölbreytni til framtíðar.
„Í veröld þar sem hungur, loftslagsbreytingar og hamfarir eru vaxandi ógn skiptir starf NordGen sífellt meira máli. Hinn mikli þekkingargrunnur sem NordGen býr yfir á sviði erfðaauðlinda geymir lausnir sem geta tryggt sjálfbæra matvælaframleiðslu á tímum loftslagsbreytinga,“ segir hún.
Lene Krøl hefur áður komið að norrænu samstarfi með ýmsum hætti og leiddi meðal annars innleiðingu European Open Science Cloud á Norðurlöndum og í Eystrasaltsríkjunum í samstarfi við NeIC og NordForsk en þar var um að ræða samstarfsverkefni um miðlun rannsóknargagna í Evrópu. Auk þess að hafa bakgrunn sem búfræðingur og búa að margra ára reynslu af vinnu við stafræna rannsóknarinnviði hefur hún byggt upp öflugt tengslanet, bæði innan Norðurlanda og á alþjóðavísu, í tengslum við varðveislu líffræðilegrar fjölbreytni og erfðaauðlinda. Þá hefur hún reynslu af störfum innan stjórnsýslunnar og er því tilbúin að treysta samstarfið við norræna og alþjóðlega aðila.
NordGen mun skipta sköpum
NordGen leikur mikilvægt hlutverk í því að uppfylla framtíðarsýn Norrænu ráðherranefndarinnar um að Norðurlönd verði sjálfbærasta og samþættasta svæði heims árið 2030. Hjá NordGen starfa 35 starfsmenn og vísindamenn og sér hún um rekstur Svalbard Global Seed Vault auk fræbankans sem geymir 33 þúsund fræsýni. Stofnunin leikur því lykilhlutverk þegar kemur að því að tryggja sjálfbæra og viðnámsþolna matvælaframleiðslu í framtíðinni.
Það er okkur ánægja að fá manneskju með eins öflugan bakgrunn og Lene Krøl Andersen í starf framkvæmdastjóra NordGen. Hún er bæði vön norrænu og alþjóðlegu samstarfi í tengslum við varðveislu líffræðilegrar fjölbreytni og erfðaauðlinda og hefur reynslu af því að setja saman og leiða teymi innan rannsóknar- og vísindastofnana. Hún er rétta konan til þess að leiða áfram þróun NordGen sem helstu stofnunar Norðurlanda í varðveislu og sjálfbærri nýtingu norrænna plöntu- og húsdýraerfðaauðlinda.
Þakkir til Lise Lykke Steffensen
Norræna ráðherranefndin færir fráfarandi framkvæmdastjóra, Lise Lykke Steffensen, þakkir fyrir að hafa stýrt NordGen undanfarin átta ár. Undir stjórn Lise Lykke hefur NordGen náð miklum árangri, ekki síst sem mikils metin rannsóknarstofnun, og tekur í dag þátt í margs konar þýðingarmiklu rannsóknarstarfi, bæði innan Norðurlanda og alþjóðlega. Á þessum tíma hefur NordGen fengið nýjar höfuðstöðvar og þekkingarmiðstöð í Alnarp í Svíþjóð og nýtur stofnunin virðingar á alþjóðavísu sem leiðandi á sínu sviði.