NIPÅ hefur tengt Álandseyjar við Norðurlönd í 40 ár
Drifkraftur í menningu í 40 ár
Frá árinu 1985 hefur NIPÅ þróast út í það að vera lykilaðili á sviði menningarsamskipta og norrænnar samvinnu. Stofnunin hefur með fjölbreyttri dagskrá lagt sitt af mörkum til líflegs menningarlífs á Álandseyjum um leið hún hefur opnað dyr fyrir norræna listamenn til að starfa á staðnum.
Þar sem engin sviðslistastofnun er á Álandseyjum hefur NIPÅ verið í samstarfi við bæði álenska og norræna aðila. Stofnunin hefur tekið að sér ábyrgð sem nær út yfir hefðbundna dagskrárstarfsemi, svo sem að byggja upp menningarlega innviði, efla listræna þróun og skapa skilyrði fyrir sjálfbært menningarlíf til langs tíma.
„Norræna stofnunin hefur á þessum 40 árum fengið þýðingarmikið hlutverk á Álandseyjum hvað varðar norræn menningarsamskipti og álenskt menningarlíf. Stofnunin leggur sitt af mörkum á mörgum sviðum og helstu áherslurnar snúa að börnum og ungmennum. Ég er sérstaklega stoltur af verkefninu NIPÅ – Ung Kultur þar sem ungt fólk úr álensku menningarlífi getur snúið aftur til Álandseyja sem starfandi listafólk. Það er framtíðarmál sem styrkir norræn tengsl og stuðlar að uppfyllingu markmiðsins um Norðurlönd sem sjálfbærasta og samþættasta svæði heims,“ segir Tasso Stafilidis, framkvæmdastjóri Norrænu stofnunarinnar á Álandseyjum.
Norrænn áhugi á Álandseyjum
Áhugi Norðurlanda á Álandseyjum er mikill. Síðast þegar auglýst var eftir umsóknum í gegnum verkefnið Kulturkraft Norden barst 161 umsókn frá listamönnum víðs vegar um Norðurlönd, nokkuð sem er skýrt merki um að Álandseyjar séu eftirsóknarverðar staður til að stunda listastarfsemi.
Á sama tíma er mikilvægt að álensku listafólki bjóðist sams konar tækifæri til að taka þátt í norrænu samstarfi. Þar gegnir NIPÅ hlutverki, ekki aðeins sem skipuleggjandi, heldur sem stefnumótandi samstarfsaðili. Með því að bjóða upp á umsjón með framleiðslu, aðstoð við markaðssetningu og aðgang að norrænum styrkjakerfum stuðlar stofnunin að því að bæta skilyrði listafólks til að starfa á faglegum grundvelli.
„Norræn menningarstofnun á borð við NIPÅ hefur sérstaka þýðingu hér á Álandseyjum. Á tímum þegar landamæri eru geta stundum verið hindrun hefur NIPÅ verið, og er enn, mikilvægur tengiliður. Í gegnum áætlanirnar Kulturkraft Åland og Kulturkraft Norden vinnum við markvisst að því að efla tækifæri álenskra og norrænna listamanna til að afla styrkja, fá vinnu og verkefni og til listrænnar þróunar. Að lokum snýst þetta um að skapa langtímaskilyrði fyrir sjálfbært menningarlíf þar sem listafólk getur starfað, lifað og vaxið, segir Annika Hambrudd, menningar- og menntamálaráðherra Álandseyja og samstarfsráðherra Norðurlanda.
Afmælishátíð með sagnalundi og menningaratriðum
Þann 11. september verður afmælinu fagnað með dagskrá fyrir boðsgesti, meðal annars norrænu samstarfsráðherrana, auk opinnar kvölddagskrár fyrir almenning. Meðal annars verður tímamótunum fagnað með menningaratriðum, afmælistertu og táknrænni gróðursetningu á norrænum sagnalundi í borgargarðinum Mariero, gjöf til framtíðarkynslóða Álendinga.
Ett jubileumskonstverk i form av ett grafiskt blad har skapats av de åländska konstnärerna Edward Johansson och Minna Öberg - Hela Norden i bokstäver.
Grafíkverk eftir álensku listamennina Edward Johansson og Minnu Öberg sem unnið var í tilefni afmælisins: Öll Norðurlöndin í bókstöfum.