Þau hljóta verðlaun Norðurlandaráðs 2025
Tveir færeyskir verðlaunahafar
Í ár falla bæði bókmenntaverðlaunin og kvikmyndaverðlaunin í skaut Færeyinga. Þetta er í fyrsta sinn sem færeysk kvikmynd er tilnefnd til kvikmyndaverðlaunanna og er það myndin Seinasta paradís á jørð sem hlýtur þau. Bókmenntaverðlaunin fær Vónbjørt Vang fyrir ljóðasafnið Svørt orkidé og er þetta í fyrsta sinn frá árinu 1986 sem færeyskur rithöfundur hlýtur verðlaunin.
Barna- og unglingabókmenntaverðalunin í ár hlýtur hin sænska Sara Lundberg fyrir myndabókina Ingen utom jag. Sara hefur í þrígang áður verið tilnefnd til verðalaunanna. Þá hlýtur íslenski píanóleikarinn Víkingur Ólafsson tónlistarverðlaunin en hann hefur í tvígang áður verið tilnefndur til þeirra verðlauna. Þema umhverfisverðlaunanna í ár er „þáttur borgarasamfélagsins í umhverfismálum“ og er þau veitt verkefninu Grønne Nabofællesskabe frá Danmörku.
Verðlaunahafarnir munu taka við verðalaunagripnum Nordlys við hátíðlega athöfn í sænska þinginu hinn 28. október kl. 18 að sænskum tíma, í tengslum við þing Norðurlandaráðs. Tekin verða viðtöl við verðlaunahafana í beinni útsendingu á sérstakri athöfn í Kulturhuset Stadsteatern í Stokkhólmi hinn 27. október kl. 19 að sænskum tíma og þar gefst einnig tækifæri til að sjá verðlaunakvikmyndina.
Lestu um verðlaunahafana og sjáðu viðtöl við þá
Barna- og unglingabókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 2025 hlýtur
Ingen utom jag eftir Sara Lundberg frá Svíþjóð
Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs 2025 hlýtur
Seinasta paradís á jørð eftir leikstjórann og handritshöfundinn Sakaris Stórá, handritshöfundana Mads Stegger og Tommy Oksen og framleiðandann Jón Hammer
Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2025 hlýtur
Svørt orkidé eftir Vónbjørt Vang frá Færeyjum.
Umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2025 hlýtur
Grønne Nabofællesskaber frá Danmörku
Tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs 2025 hlýtur
Víkingur Ólafsson frá Íslandi