Menning er viðnámsþróttur – Norðurlönd efla viðbúnað með samstarfi

02.10.25 | Fréttir
Ljósmyndari
Gunnar Ridderström/Unsplash
Menningararfur og listrænt frelsi eru lykilatriði í því að byggja upp viðnámsþolin og inngildandi lýðræðissamfélög. Á þessum átakamiklu tímum verður menning oft að skotmarki fyrir árásir – einmitt vegna þess að hún eflir sjálfsmyndir þjóða, samheldni og von. Þess vegna þarf menningin að vera hluti af viðbúnaði samfélagsins.

Þessum skilaboðum var haldið á lofti í pallborðsumræðum sem Norræna ráðherranefndin kom að því að skipuleggja. Umræðurnar fóru fram á MONDIACULT 2025, stærstu menningarpólitísku ráðstefnu heims, sem haldin var í Barselóna 29.9–1.10. 

„Menning er viðnámsþróttur. Á krísutímum þarf menningin að vera í brennidepli í aðgerðum okkar. Þess vegna er norrænt og alþjóðlegt samstarf lykilatriði í því að standa vörð um frelsi, sjálfsmyndir og þær raddir sem eiga þöggun á hættu þegar mest á ríður,“ sagði Lubna Jaffery menningar- og jafnréttisráðherra Noregs, í inngangsávarpi sínu.

Aðrir þátttakendur á viðburðinum voru menningarmálaráðherra Finnlands, Mari-Leena Talvitie, Karin Svanborg-Sjövall, ráðuneytisstjóri í sænska menningarmálaráðuneytinu, og Eirikur í Jákupsstovu, félags- og menningarmálaráðherra Færeyja.

 Karin Svanborg-Sjövall, statssekreterare vid Sveriges kulturdepartement, Lubna Jaffery Norges kultur- och jämställdhetsminister, Mari-Leena Talvitie, Finlands kulturminister , Eirikur í Jákupsstovu, social- och kulturminister på Färöarna.

Ljósmyndari
Kaisla Härkönen

Norrænt og alþjóðlegt samstarf mikilvægt

Norræna ráðherranefndin beitir sér fyrir því að efla þátt menningar í krísuviðbúnaði með aukinni reynslumiðlun innan menningargeirans, bæði á Norðurlöndum og á alþjóðavettvangi. Markmiðið er að tryggja að menningin verði eftir sem áður hornsteinn fyrir viðnámsþrótt, lýðræði og samheldni. Aukið samstarf á sviði menningar- og viðbúnaðarmála var einnig ofarlega á baugi þegar menningarmálaráðherrarnir funduðu síðasta vor og tóku ákvörðun um að undirbúa samnorrænar aðgerðir til að efla samráð ólíkra fagsviða um hlutverk menningar í samfélagslegu öryggi.

„Menning er auðlind á friðartímum – og líflína á krísutímum. Með því að standa vörð um menninguna á krísutímum verjum við um leið mennsku og viðnámsþrótt samfélaga,“ segir Eirikur í Jákupsstovu, menningarmálaráðherra Færeyja.

Í pallborðsumræðunum á ráðstefnunni MONDIACULT var bent á það að Norðurlönd deili sterkum sameiginlegum gildum sem grundvallist á lýðræði, tjáningarfrelsi og gagnkvæmu trausti. Þetta séu allt mikilvægir þættir í að byggja upp viðnámsþolin samfélög sem standa vörð um mannréttindi og menningarleg réttindi. Í hnattrænu samhengi geti norrænu löndin tekið forystu í að standa vörð um menningarleg réttindi.

„Formennska Finnlands og Álandseyja í Norrænu ráðherranefndinni hefur lagt áherslu á það hvernig öflugt menningarlíf, gott fjölmiðlalæsi og menningarlegur fjölbreytileiki geta stuðlað að viðnámsþolnara samfélagi með því að efla samheldni, gagnrýna hugsun og lýðræðislega þátttöku. Mikilvægt er að ræða þessi málefni á hnattrænum vettvangi á borð við MONDIACULT, ráðstefnu UNESCO,“ segir Mari-Leena Talvitie, menningarmálaráðherra Finnlands.

Í tvennum pallborðsumræðum á viðburðinum á MONDIACULT var fjallað um hlutverk menningar í samfélagsþróun og enduruppbyggingu, og einnig um það hvernig tjáningarfrelsi og listrænt frelsi geti veitt svæðum betri forsendur til að takast á við ógnir og krísur. Þátttakendur í pallborðsumræðunum voru Abdullah Alkafri (Ettijahat), Kristin Danielsen (Norræni menningarsjóðurinn), Deeyah Khan (velgjörðarsendiherra UNESCO) og Denis Krivosheev (Amnesty International). Umræðum stjórnaði Iina-Lotta Kuisma, ungmennafulltrúi Finnlands hjá Sameinuðu þjóðunum.