Peter Tulinius Krarup nýr framkvæmdastjóri Norðurlandahússins í Færeyjum
Peter Tulinius Krarup á að baki langan alþjóðlegan feril í menningargeiranum. Hann fæddist í Haslev árið 1970 og nám hans og störf í Danmörku, Noregi, Englandi og Þýskalandi hafa veitt honum víðtæka hæfni og öflugt tengslanet í norður-evrópsku menningarlífi. Frá árinu 2019 hefur hann verið forstjóri Harstad Kulturhus, þar sem hann ber ábyrgð á rekstri þriggja mikilvægra menningarstofnana á svæðinu og stýrir stofnun með yfir 40 starfsmenn.
„Það er mér mikill heiður að fá að veita Norðurlandahúsinu í Færeyjum forstöðu. Húsið er byggingarlistaleg perla sem býður upp á margs konar möguleika og hefur sterka stöðu í færeysku samfélagi,“ segir hann.
Peter Tulinius Krarup bendir á að á tímum þegar norrænt samstarf er mikilvægara en nokkru sinni fyrr gegni húsið mikilvægu hlutverki sem brú milli Færeyja og annarra Norðurlanda og sem vettvangur fyrir samræður, samheldni og listræn gæði.
Hann hlakkar til að þróa hlutverk hússins áfram í samvinnu við starfsfólkið og hið ríka og lifandi færeyska menningarlíf, sem opinn og líflegan samkomustað þar sem færeysk og norræn menning geta veitt hvor annarri innblástur og auðgað hvor aðra. Hann hlakkar einnig til að setjast að í Færeyjum og verða virkur þátttakandi í menningarlífinu og samfélaginu.
Reynsla úr lista- og menningarlífinu
Peter Tulinius Krarup er með akademískan bakgrunn í evrópskri menningarpólitík, stjórnsýslu og tónlistarfræði auk þess að hafa margra ára reynslu af hljómsveitum, hátíðum og menningarstofnunum. Þetta veitir honum bæði víðtækan skilning á menningarpólitík og stjórnunarlega og listræna sérþekkingu.
„Það er mjög ánægjulegt að geta boðið Peter Tulinius Krarup velkominn til liðs við norrænt samstarf í hlutverki framkvæmdastjóra Norðurlandahússins í Færeyjum. Hann kemur til okkar með mikla reynslu sem leiðtogi og mikinn skilning á mikilvægi menningarstofnunar í samfáleginu. Við berum mikið traust til hans þegar við afhendum honum lyklavöldin í Norðurlandahúsinu,“ segir Karen Ellemann, framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar.
Norðurlandahúsið í Færeyjum er mikið sótt menningarhús sem stendur fyrir yfir 300 menningarviðburðum ár hvert, þar á meðal barnahátíðum, listasýningum og hljómsveitum, meðal annars með Sinfóníuhljómsveit Færeyja. Norðurlandahúsið í Færeyjum var opnað árið 1983 sem ein af nú fimm norrænum menningarstofnunum á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar. Hið einstaka hús, hannað af arkitektunum Ola Steen frá Noregi og Kolbrúnu Ragnarsdóttur frá Íslandi, hefur frá upphafi verið vinsælt menningarlegt kennileiti í Þórshöfn með 120.000 gesti árlega. Tilgangur þess er bæði að efla menningarskipti við önnur norræn lönd og greiða götu færeysks menningarlífs.
Gunn Hernes lætur af störfum eftir átta ár
Núverandi framkvæmdastjóri, Gunn Hernes, lætur af störfum eftir heil átta ár í embætti. Undir hennar stjórn hefur Norðurlandahúsið getað boðið færeyskum áhorfendum upp á vandaða og fjölbreytta dagskrá þrátt fyrir áskoranir eins og Covid-19 og verðbólgu. Hernes hefur einnig unnið mikið að grænum umskiptum innan menningargeirans og gefið húsinu grænni ímynd. Þá hefur hún lagt mikla áherslu á unga áhorfendur og þróað Norðurlandahúsið í virkan þátttakanda í norrænni og færeyskri samfélagsumræðu. Peter Tulinius Krarup tekur við af henni þann 1. september.