Nora Dåsnes hlaut barna- og unglingabókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 2022

01.11.22 | Fréttir
Nora Dåsnes
Photographer
Magnus Fröderberg, norden.org
Myndasagan „Ubesvart anrop“ eftir Noru Dåsnes frá Noregi hlaut barna- og unglingabókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs á þriðjudagskvöld í Helsinki. Nora Dåsnes hlýtur verðlaunin fyrir sterkt, trúverðugt og blæbrigðaríkt verk sem fjallar um þau áhrif sem hryðjuverkaárásin 22. júlí 2011 hafði á norsku þjóðina.

Barna- og unglingabókmenntaverðlaunin voru veitt við verðlaunaathöfn í beinni útsendingu frá Tónlistarhúsinu í Helsinki. Verðlaunin afhenti Sophia Jansson, stjórnarformaður Moomin Characters Oy Ltd og bróðurdóttir Tove Jansson.

Rökstuðningur dómnefndar

Verðlaunahafinn í ár hefur skrifað bók sem vekur áhuga lesenda, hreyfir við þeim og hvetur þá til að hugleiða pólitísk samfélagsmál sem varða okkur öll, svo og einstaklingsbundnar tilvistarspurningar.

 

Myndirnar í bókinni eru lágstemmdar, sjálfum sér samkvæmar og bera skýr persónuleg stíleinkenni. Gegnum myndir og texta dregur höfundur upp blæbrigðaríka mynd af innra og ytra lífi aðalpersónunnar, lausa við tilfinningasemi. Teikningarnar eru fljótandi, þrungnar hversdagslegri depurð, og textinn er trúverðugur og talmálslegur. Þegar textinn er spar á upplýsingar taka myndirnar yfir sem aðalsögumaður. Litanotkun er markviss, áhrifamikil og tjáningarrík og ber vott um getu höfundarins til að draga með fáguðum hætti mörk á milli fortíðar og nútíðar, drauma og veruleika.

 

Frásögnin hefur hrottafengna umgjörð og blóðugt baksvið. Sagan gerist í kjölfar 22. júlí 2011, þegar 77 týndu lífi í hryðjuverkaárás á Útey og í stjórnarhverfinu í Ósló. Þær spurningar sem liggja eins og rauður þráður gegnum alla bókina eru: Hver er hryðjuverkamaðurinn? Hver er ég? Hver erum við sem samfélag? Hvernig má endurheimta hversdaginn og daglegt líf eftir að áfall dynur yfir?

 

Tvær síðustu setningarnar í bókinni eru einfalt en þó áhrifamikið svar við hinu hrikalega hryðjuverki:

Við höfum bara hvert annað. Og við höfum bara núið.

Handhafi barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs í ár er Ubesvart anrop („Ósvarað kall“, hefur ekki komið út á íslensku) eftir Noru Dåsnes.

Um Noru Dåsnes

Nora Dåsnes, fædd 1995, er rithöfundur og myndskreytir sem nam við Kingston University í Lundúnum. Frumraun hennar sem höfundar og myndskreytis var árið 2020, þegar hún sendi frá sér myndasöguna Ti kniver i hjertet („Tíu hnífar í hjartað“, hefur ekki komið út á íslensku). Fyrir hana hlaut hún bæði Pondus-verðlaunin og verðlaun norska menningarmálaráðuneytisins fyrir bestu myndasögu ársins.

Ubesvart anrop er önnur myndasaga hennar.

Um verðlaun Norðurlandaráðs

Norðurlandaráð veitir fimm verðlaun ár hvert: bókmenntaverðlaun, kvikmyndaverðlaun, tónlistarverðlaun, umhverfisverðlaun og barna- og unglingabókmenntaverðlaun. Verðlaunahafar fá verðlaunastyttuna Norðurljós og 300 þúsund danskar krónur við verðlaunaathöfn sem haldin er í tengslum við árlegt þing Norðurlandaráðs.

Den norske forfatteren Nora Dåsnes får Nordisk rådets barn- og ungdomslitteraturpris 2022 for den grafiske romanen ”Ubesvart anrop”. Utdeler av prisen var Sophia Jansson, styreleder for Moomin Characters Oy Ltd .