Hér eru tilnefningarnar til barna- og unglingabókmennta-verðlauna Norðurlandaráðs 2026

26.03.26 | Fréttir
Ljósmyndari
norden.org
Í ár eru 13 verk tilnefnd til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Á meðal verka eru myndabækur, skáldsögur og teiknimyndasögur. Í tilnefningum ársins er náttúran athugunarefnið, bæða ofan- og neðansjávar, um allar árstíðir og skapa frjóan jarðveg fyrir ímyndunaraflið. Fyrir unga lesandann lætur alvaran á sér kræla þegar þemu eins og söknuður, sjálfsmynd, aðskilnaður og ringulreið mótast af umhverfi hinna fullorðnu. Áskoranirnar sem takast þarf á við hvort sem manni líkar betur eða verr.

Tilnefningarnar eru eftirfarandi:

Danmörk

Finnland

Færeyjar

Grænland

Ísland

Noregur

Samíska málsvæðið

Svíþjóð

Verðlaunahafinn kynntur 26. mars

Tilkynnt verður um handhafa barna - og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2026 hinn 20. október. Handhafa verðlaunanna verður afhent styttan Norðurljós á sérstakri verðlaunahátíð í tengslum við þing Norðurlandaráðs í Helsinki 27. október. Verðlaunin nema 300 þúsundum danskra króna.

Um barna- og unglingabókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs

Barna- og unglingabókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs voru veitt í fyrsta sinn árið 2013 að ósk norrænu menningarmálaráðherranna, sem höfðu um árabil viljað efla og vekja athygli á barna- og unglingabókmenntum á Norðurlöndum. 

Verðlaunin eru veitt fyrir fagurbókmenntaverk fyrir börn og unglinga sem samið er á einu af norrænu tungumálunum. Verkið getur samanstaðið af bæði texta og myndum og skal uppfylla strangar kröfur um bókmenntalegt og listrænt gildi.