Norðurlandaráðsþing 2025 í Stokkhólmi

29.09.25 | Fréttir
Glada ministrar i Stortinget
Ljósmyndari
Magnus Fröderberg
Nú líður að árlegu þingi Norðurlandaráðs sem að þessu sinni verður haldið í sænska þinghúsinu 28.-31. október. Á þinginu, sem er stærsti norræni stjórnmálaviðburður ársins, koma saman 87 þingmenn Norðurlandaráðs ásamt forsætisráðherrum, utanríkisráðherrum og ýmsum öðrum ráðherrum frá öllum Norðurlöndunum og alþjóðlegum boðsgestum.

„Fyrir hönd sænsku landsdeildarinnar hlakka ég mikið til að taka á móti norrænum kollegum okkar í sænska þinghúsinu í Stokkhólmi. Á tímum þegar norrænt samstarf skiptir meira máli en nokkru sinni fyrr er þing þessa árs sérstaklega mikilvægt,“ segir Heléne Björklund forseti Norðurlandaráðs.

Fjóra annasama daga er komið saman til að ræða þau pólitísku málefni sem efst eru á baugi á svæðinu. Þingfundirnir eru opnir almenningi og einnig er hægt að fylgjast með þeim í streymi á norden.org

Þingvikan hefst mánudaginn 27. október á fundum flokkahópanna fimm í Norðulandaráði og dagana á undan kemur Norðurlandaráð ungmenna saman á sínu eigin þingi.

Formleg þingsetning verður þriðjudaginn 28. október kl. 14.00 í sænska þinghúsinu. Sama dag verður haldinn leiðtogafundur Norðurlandaráðs og norrænu forsætisráðherranna í þingsalnum.

Samkvæmt hefð lýkur þingvikunni með kosningu nýs forseta og varaforseta Norðurlandaráðs fyrir árið 2026 þegar er komið að Finnlandi og Álandseyjum að stýra starfi ráðsins.

Verðlaun Norðurlandaráðs

Afhending verðlauna Norðurlandaráðs fer fram í tengslum við þingið. Afhent verða fimm verðlaun á sviði bókmennta, barna- og unglingabókmennta, kvikmynda, tónlistar og umhverfismála. Verðlaunaveitingin verður að kvöldi 28. október og hægt er að fylgjast með henni í streymi.

Taka þátt eða fylgjast með úr fjarlægð

Öllum er opið að fylgjast með umræðum og verðlaunaafhendingu á netinu. 

Dagskráin í heild og frekari upplýsingar um þingið verða birtar jafnt og þétt á norden.org

Fréttamenn þurfa að skrá sig til þátttöku á staðnum – frekari upplýsingar er að finna á vefsvæði þingsins.