Norræn nefnd um öryggis- og varnarmál – tillögur um aukið norrænt samstarf til að tryggja öryggi og stöðugleika
Öflugt norrænt samstarf ógnar engum heldur styður við stöðugleika svæðisins og eykur fyrirsjáanleika. NATO-aðild Finnlands og Svíþjóðar opnar fyrir mikla möguleika
Öryggi á Norðurlöndum og grannsvæðum þeirra er ein af megináherslunum í stefnu Norðurlandaráðs í alþjóðamálum sem samþykkt var í mars 2023 og er einnig mikilvægur þáttur í stefnu ráðsins um samfélagsöryggi. Stefnurnar, sem voru þróaðar í samstarfi allra flokkahópa Norðurlandaráðs, voru samþykktar með miklum meirihluta, sem er til vitnis um þá miklu samstöðu sem ríkir um að öryggismál gegni lykilhlutverki í norræna samstarfinu.
Skortur á sameiginlegri nefnd með norrænu starfsumboði
Norðurlandaráð telur nefndartillöguna vera mikilvægan áfanga í norrænu samtarfi um öryggismál og sameiginlegum aðgerðum í þágu stöðugleika og öryggis á svæðinu.
Öryggis- og varnarmál á Norðurlöndum eru oft meginviðfangsefnið á þingum Norðurlandaráðs. Jens Stoltenberg framkvæmdastjóri NATO var aðalræðumaður á þingum ráðsins bæði í Kaupmannahöfn 2021 og Osló 2023.
Á hverju ári býður forsætisnefnd Norðurlandaráð Nordefco, formennskulandinu og formönnum varnarmálanefnda norrænu þjóðþinganna í hringborðsumræður um öryggismál á Norðurlöndum. Nordefco gegnir hlutverki samstarfsvettvangs þar sem mikilvæg mál eru rædd en allar ákvarðanir á sviði varnarmála eru enn teknar af hverju landi fyrir sig.
Þrátt fyrir að landsnefndir séu til og ýmsar skýrslur liggi fyrir á þessu sviði telur forsætisnefnd engu að síður vera þörf fyrir sameiginlegan norrænan vettvang öryggis- og varnarmála fyrir Norðurlönd í heild. Þess vegna leggur forsætisnefnd til að stofnuð verði nefnd um öryggis- og varnarmál sem hefur samnorrænt starfsumboð.
Þar sem öll norrænu löndin eru nú í NATO höfum við einstakt tækifæri til að vinna enn nánar saman og standa vörð um lýðræðið og sameiginleg gildi okkar
Þar sem öll norrænu löndin eru nú í NATO og með nýrri framtíðarsýn fyrir Nordefco telur Norðurlandaráð að nú séu forsendur fyrir því að koma á fót norrænni nefnd um öryggis- og varnarmál. Samkvæmt tillögunni þarf nefndin að hafa víðtækt umboð með aðkomu bæði varnarmálageirans og stjórnmálamanna í öllum norrænu löndunum.
Í tillögunni kemur fram að starf nefndarinnar geti falið í sér sameiginlega greiningu á öryggi á norðurslóðum, í Norður-Atlantshafi og í Eystrasalti, sem og þróun sameiginlegra varna með áherslu á netöryggi og fjölþáttaógnir. Leggja þarf megináherslu á að tryggja sameiginlegt öryggi, samræma betur ákvarðanir landanna um varnir og að efla norrænt samstarf um öryggi.
Það er mikilvægt að leggja enn meiri áherslu á samstarf okkar um norðurslóðir, Norður-Atlantshafið og Eystrasalt til að tryggja örugga framtíð fyrir okkur öll
Í tillögu Norðurlandaráðs er lagt til að ríkisstjórnir og varnarmálaráðherrar Norðurlanda leiði þessa vinnu en áhersla er lögð á mikilvægi þess að norrænir þingmenn taki einnig þátt. Þátttaka þeirra á að tryggja vítt norrænt sjónarhorn og pólitískan stuðning við störf nefndarinnar.