Stöndum sterkari saman – nýtt skeið norræns samstarfs um öryggismál og viðbúnað

02.04.25 | Fréttir
President of Finland Alexander Stubb

Finlands President Alexander Stubb taler foran Nordisk råds 87 parlamentarikere i Finlands Riksdag i Helsingfors.

Ljósmyndari
Magnus Fröderberg/norden.org

Alexander Stubb Finnlandsforseti ávarpar 87 þingmenn Norðurlandaráðs á finnska þinginu í Helsinki.

Á þemaþingi Norðurlandaráðs í Helsinki þann 1. apríl fjallaði Norðurlandaráð um mikilvægi norrænnar samstöðu á fundi um stöðuna í öryggismálum sem uppi er á Norðurlöndum og heiminum. Í opnunarræðu sinni lagði Alexander Stubb, forseti Finnlands, áherslu á hið norræna traust, samstöðu og sameiginlegt gildismat.

„Traust er hið norræna gull“

„Við erum í ólgusjó,“ sagði Alexander Stubb Finnlandsforseti þegar hann lýsti óvissuástandi í heimsmálunum. Hann sagði norræna samheldni og samstarf vera klett í hafinu.

Jafnframt benti hann á að hið norræna traust og samnorrænu gildi sem velferðarríkið er byggt á, þ.e. lýðræði, réttarríkið, mannréttindi, jafnrétti og sjálfbærni, séu nú mikilvægari en nokkru sinni. Ekki megi ganga út frá þessum gildum sem vísum heldur verði að standa vörð um þau.

„Traust er hið norræna gull. Í því eru fólgin sameiginleg verðmæti okkar,“ sagði forseti Finnlands.

Ráðherra almannavarna í Svíþjóð: Við verðum að efla viðbúnað og afhendingarinnviði á Norðurlöndum.

Carl-Oskar Bohlin, ráðherra almannavarna í Svíþjóð, beindi því næst kastljósinu að nauðsyn þess að efla viðbúnað á Norðurlöndum, einkum á sviði afhendingar- og raforkuviðbúnaðar og innviða.

„Það er tími til kominn að við áttum okkur á því að við tímarnir hafa breyst og það ætti að vera forgangsmál að við lögum okkur að breyttum tímum,“ sagði ráðherrann.

Auk ráðherrans bentu nokkrir þingmenn Norðurlandaráðs á að viðbúnaður snúist ekki bara um hernaðarlegan styrk heldur einnig öfluga félagslega og efnahagslega innviði og þar gegni velferðarríkið mikilvægu hlutverki. Margir bentu einnig á mikilvægi þess að Norðurlönd í heild sinni, einnig Grænland, Færeyjar og Álandeyjar, kæmu að viðbúnaðarmálum.

Ljósmyndari
Magnus Fröderberg/norden.org

Carl-Oskar Bohlin, ráðherra almannavarna í Svíþjóð, hefur lengi talað skýrt um þörfina á því að efla viðbúnað í Svíþjóð. Á þemaþinginu undirstrikaði hann mikilvægi samstarfs innan Norðurlanda og á milli Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna til þess að Norðurlönd séu í stakk búin að takast á við krísur og í versta falli stríð.

Öryggi og viðbúnaður snúast um fleira en varnarmál

Fyrirspurnatíminn og umræðurnar báru vott um breiða norræna samstöðu um að efla samstarf á sviði allsherjarvarna og viðbúnaðar. Jafnframt bentu margir þingmenn Norðurlandaráðs á þætti sem enn er ábótavant á Norðurlöndum:

„Þegar krísur koma upp horfa menn oft inn á við. En við verðum að læra af heimsfaraldrinum og koma á formlegu og öflugu norrænu samstarfi á sviði samgöngumála. Við viljum ekki herða landamærin á krísutímum,“ sagði Kjell-Arne Ottosson, formaður norrænu hagvaxtar- og þróunarnefndarinnar.

Emma Berginger frá norrænu sjálfbærninefndinni benti á að öryggi snúist um fleira en hernaðarlegan varnarmátt:

„Loftslags-, umhverfis- og náttúruváin er líka ein helsta öryggisógn okkar daga og Norðurlönd verða að standa saman til að takast á við hana.“

Margir þingmenn bentu einnig á hlutverk velferðarríkisins í allsherjarviðbúnaði, einkum með tilliti til lyfja- og heilbrigðisviðbúnaðar. Covid-faraldurinn leiddi í ljós bresti í norrænu samstarfi um heilbrigðisviðbúnað og við verðum að læra af því, benti meðal annars formaður norrænu velferðarnefndarinnar, Eva Lindh, á.

Í opnunarræðu sinni benti Alexander Stubb Finnlandsforseti á að helsta vörn Norðurlanda á óvissutímum sé fólgin í norrænni samstöðu. Í umræðunum sem fylgdu í kjölfarið byggði Veronica Honkasalo frá norrænu þekkingar- og menningarnefndinni á þessu og benti á menningu og menntun sem lykilþátt í almannavörnum, bæði til að koma í veg fyrir krísur og efla viðnámsþrótt samfélagsins.

Emma Berginger fra utvalget for et holdbart Norden
Ljósmyndari
Magnus Fröderberg/norden.org

Emma Berginger frá norrænu sjálfbærninefndinni óskar eftir því að veita andsvar á fundinum.

Leiðin áfram fyrir Norðurlandaráð

Umræðurnar sýndu glöggt að norrænt samstarf og Norðurlandaráð leika mikilvægt hlutverk þegar kemur að því að efla samstöðu norrænu landanna, bæði á krísutímum og almennt. Carl-Oskar Bohlin, ráðherra almannavarna í Svíþjóð, benti einnig á þörfina á því að tryggja að tengslin á milli landanna verði áfram sterk og undirstrikaði mikilvægi Norðurlandaráðs til þess að viðhalda og þróa samstarfið.

Eftir hádegi á þriðjudag tók stjórn Norðurlandaráðs, forsætisnefndin, þátt í fundi NORDEFCO í Helsinki ásamt fulltrúum varnarmálanefnda norrænu þjóðþinganna og varnarmálaráðherra Finnlands, Antti Häkkänen.

Vitnaði í Línu Langsokk

Forseti Finnlands lauk máli sínu á því að vitna í barnabókmenntirnar:

„Með orðum Línu Langsokks: Sá sem er mjög sterkur verður líka að vera mjög góður.“

Styrk fylgir ábyrgð, minnti hann á – skilaboð sem eiga jafnt við um Norðurlönd sem Línu Langsokk.

Þemaþing Norðurlandaráðs 2025

Á þemaþingi Norðurlandaráðs fjallaði forsætisnefndin einnig um svar norrænu ríkisstjórnanna varðandi endurnýjun á „stjórnarskrá Norðurlanda“, Helsingforssáttmálanum, auk þess að gefa út yfirlýsingu um stuðning Norðurlandaráðs við Grænland.