Viðbúnaðarmál og allsherjarvarnir í brennidepli á fundi forsætisnefndar Norðurlandaráðs á Íslandi
Staðsetning Íslands í Norður-Atlantshafi er hernaðarlega mjög mikilvæg. Í heimsókn okkar á varnarsvæðið á Keflavíkurflugvelli fengum við dýrmæta innsýn í bæði NORDEFCO- og NATO-samstarfið sem er nátengt starfssviði forsætisnefndarinnar. Það hefur því mikla þýðingu að fundurinn hafi verið haldinn hér,“ segir Dagbjört Hákonardóttir, formaður íslensku landsdeildarinnar í Norðurlandaráði og fulltrúi í forsætisnefndinni.
Heimsóknin til Keflavíkur lagði grunninn að fundinum daginn eftir þar sem forsætisnefndin hélt áfram að fjalla um tillögu til norrænu ríkisstjórnanna um að auka vægi allsherjarviðbúnaðar í norrænu samstarfi. Í tillögunni er vakinn athygli á þörfinni á aukinni samræmingu bæði almannavarna og hernaðarlegs viðbúnaðar á tímum þar sem norrænu löndin öll eiga aðild að NATO og staðan í öryggismálum hefur breyst verulega.
Tillagan felur meðal annars í sér að Norðurlandaráð beini þeim tilmælum til norrænu ríkisstjórnanna að veita Álandseyjum, Færeyjum og Grænlandi aðild að Haga-samstafinu og efla norrænta samstarf um æfingar, aðfangaleiðir, orkuöryggi og flutninga.
Stefna Norðurlandaráðs um samfélagsöryggi var samþykk einróma á þingi Norðurlandaráðs í Stokkhólmi 2019. Skömmu síðar leiddi heimsfaraldur kórónuveiru í ljós hve illa Norðurlönd voru í stakk búin sem svæði til að takast á við slíka krísu. Síðan þá hefur sviðsmyndin í öryggismálum gjörbreyst.
Forsætisnefndin bendir á að kórónuveirufaraldurinn og breytt landslag í öryggismálum á Norðurlöndum hafi sýnt fram á þörfina á traustari og samþættari allsherjarvörnum. Einn af meginþáttum tillögunnar felst einnig í því að veita frjálsum félagasamtökum skýrara hlutverk í krísuviðbrögðum og tryggja stöðugar birgðir og aðfangaleiðir um öll Norðurlönd, einnig á Norður-Atlantshafi. Fjallað verður áfram um tillöguna á fundum Norðurlandaráðs í Hróarskeldu í febrúar.
Þá tengist þema fundarins jafnframt formennskuáætlun Finnlands og Álandseyja árið 2026 sem ber yfirskriftina Almennt öryggi á Norðurlöndum.