Sumarfundur forsætisnefndarinnar í Blekinge: Norðurlandaráð í návígi við varnarmál við Eystrasaltið

12.06.25 | Fréttir
Nordisk Råds præsidium besøger Saab Kockums AB

Nordisk Råds præsidium besøger Saab Kockums AB

Ljósmyndari
Saab Kockums

Forsætisnefnd Norðurlandaráðs heimsækir Saab Kockums AB í Karslkrona

Þótt þinglegt samstarf Norðurlandaráðs fari mestan hluta ársins fram í höfuðborgum og þinghúsum er hefð fyrir því að einu sinni á ári hittist þingmenn einhvers staðar á Norðurlöndum þar sem þeir geta kynnst raunveruleikanum á bak við málefnaskrána. Dagana 11.–12. júní kom forsætisnefndin saman í Blekinge í suðausturhluta Svíþjóðar, svæði sem hefur mikla þýðingu fyrir varnir og öryggi Svíþjóðar og Noregs.

Á flotastöðinni í Karslkrona var meðlimum forsætisnefndarinnar sýnt um borð í herskipið HMS Nyköping sem er hluti af Visby-flokknum í sænska flotanum. Þar sagði Bernt Andersson flotaforingi frá sænska flotanum og norrænu flotasamstarfi. Meðal annars greindi hann frá því að flotar norrænu landanna hafi hver sína stefnu og uppbyggingu sniðna að heimahöfum og ógnum. Í því felst styrkur því með því að vinna náið saman og vega hver annan upp verða þeir sterkari.

Heimsóknin til Karlskrona bauð einnig upp á innsýn í varnartækni framtíðarinnar. Í skipasmíðastöð Saab Kockum AB fengu þingmennirnir að kynna sér smíði á nýjum kafbátum og eftirlitsflugvélum, nokkru sem skiptir sköpum þegar kemur að öryggi á Eystrasaltinu og Norðurlöndum í heild.

Heimsóknin til Blekinge snerist ekki bara um varnarmál

Á dagskrá voru einnig pólitískar umræður og ákvarðanir sem varða öll Norðurlönd. Forsætisnefndin fór yfir stöðuna á vinnunni við að afnema stjórnsýsluhindranir. Meðal annars var fjallað um hugmyndina um að samræma þjóðskrár landanna.

Einnig var stefna í alþjóðamálum rædd. Heléne Björklund, forseti Norðurlandaráðs, benti á að hlustað sé á rödd Norðurlanda: „Við finnum fyrir vaxandi áhuga á samstarfi við Norðurlandaráð. Fleiri erlendir aðilar leita til okkar en nokkru sinni.“

Einnig fór forsætisnefndin yfir stöðu skipulagningar stærsta pólitíska viðburðar ársins, Norðurlandaráðsþingsins, sem í ár verður haldið í Stokkhólmi í viku 44. Um leið var unnið áfram með tillögu að breytingum sem miða að því að tryggja betur að öll norrænu löndin átta eigi fulltrúa í forsætisnefndinni.

Á fundinum var samþykkt að framlengja samninginn við Kristinu Háfoss, framkvæmdastjóra Norðurlandaráðs, um þrjú ár. Að lokum gáfu landsdeildir Finnlands og Álandseyja forsmekkinn að því sem koma skal í formennskuáætlun næsta árs þar sem áhersla verður lögð á samfélagsöryggi og viðnámsþrótt.