Norræn og úkraínsk ungmenni koma saman í sumarbúðum í Útey
Í byrjun júlí komu 56 ungmenni frá aðildarfélögum Norðurlandaráðs ungmenna í öllum norrænu löndunum saman auk þátttakenda frá úkraínskum æskulýðssamtökum. Á dagskrá voru vinnustofur, umræður, menningarmiðlun og ný vinatengsl.
Frá öryggismálum til menningarkvölds og vinatengsla
Haldnar voru vinnustofur um málefni á borð við nýja norræna stefnu í öryggismálum, loftslags- og umhverfismál, vinnumarkað framtíðarinnar og menntakerfin á Norðurlöndum. Fluttar voru kynningar og fyrirlestrar, haldnar voru umræður og ályktanir samdar. Á lokadeginum voru ályktanirnar kynntar fyrir Heléne Björklund, forseta Norðurlandaráðs, sem heimsótti búðirnar og veitti tillögum þátttakenda viðtöku.
Auk vinnustofanna bauð forysta Norðurlandaráðs ungmenna upp á kynningar á norrænu samstarfi, norrænum stjórnmálum og sögu. Þá héldu úkraínsku þátttakendurnir kynningu á sögu og menningu Úkraínu sem féll í góðan jarðveg. Einn af hápunktum dagskrárinnar var hið vinsæla menningarkvöld þar sem þátttakendur kynntu fyrir hver öðrum góðgæti, muni og tónlist frá heimalöndum sínum. Þá var einnig keppt í ræðumennsku, blaki og sundi.
Vettvangur norræns samstarfs framtíðarinnar
Í sumarbúðum Norðurlandaráðs ungmenna gefst ungu og pólitískt þenkjandi fólki færi á að hittast þvert á landamæri og stjórnmálaskoðanir. Þátttakendur mynda ekki aðeins ný tengsl og vinabönd heldur öðlast raunverulega innsýn í það hvernig norrænt samstarf virkar. Þá gefa búðirnar skýrari mynd af því hvernig ungt fólk getur með þátttöku sinni stuðlað að áframhaldandi þróun samstarfsins.