Norrænt menningarlíf skein skært í sænska þinghúsinu er verðlaun Norðurlandaráðs 2025 voru afhent
Vónbjørt Vang hlaut bókmenntaverlaunin fyrir ljóðabókina Svørt orkidé.
Í kvöld komu stjórnmálamenn og menningarmálaráðherrar frá Norðurlöndum saman í sænska þinginu til að heiðra verðlaunahafa Norðurlandaráðs. Þetta var fallegt kvöld með tónlist, menningarinnslagi og heiðrun framlaga til norrænnar menningar og umhverfis.
Þetta var minnisstætt kvöld fyrir verðlaunahafana. Fyrstu verðlaunin sem voru veitt voru barna- og unglingabókmenntaverðlaunin sem Sara Lundberg frá Svíþjóð hlaut fyrir myndabókina Ingen utom jag. Tónlistarverðlaunin hlaut íslenski píanóleikarinn Víkingur Ólafsson og umhverfisverðlaunin hlaut Grønne Nabofællesskaber frá Danmörku.
En kvöldið var fyrst og fremst stór fyrir Færeyjar. Í fyrsta sinn í sögunni hlaut færeysk kvikmynd kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs – Seinasta paradís á jørð eftir leikstjórann og handritshöfundinn Sakaris Stórá, handritshöfundana Mads Stegger og Tommy Oksen og framleiðandann Jón Hammer.
„Það eitt að vera tilnefndur er mikill heiður – að vinna er ótrúlegt,“ sagði handritshöfundurinn og leikstjórinn Sakaris Stórá.
Vónbjørt Vang hlaut bókmenntaverlaunin fyrir ljóðabókina Svørt orkidé. Þetta er í fyrsta sinn frá árinu 1986 sem bókmenntaverðlaunin eru veitt færeyskum höfundi. „Að hljóta bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs er ekki aðeins þýðingarmikið fyrir mig, heldur einnig færeyskar bókmenntir. Það hefur komið mér á óvart hversu mikils virði bókin mín hefur verið fyrir aðra,“ sagði Vónbjørt Vang.
Sjá má myndir frá verðlaunaafhendingunni í norræna myndabankanum og myndasafni sænska þingsins: