Norræna ráðherranefndin fjárfestir 30 milljónum danskra króna í eflingu almannasamtaka
Rannsóknarverkefni, ferðastyrkur, kvikmyndahátíð og Pride-ráðstefna eru aðeins nokkur dæmi um verkefni sem hafa fengið styrk úr Demos. Tilgangur áætlunarinnar er að bæta möguleika almannasamtaka til að vinna saman, hafa áhrif og efla rödd sína. Úthlutunarupphæðin hefur aldrei verið hærri en í ár, sem segir ef til vill eitthvað um samtímann.
Þessi fjárfesting, sem kemur beint frá norrænu samstarfsráðherrunum, sýnir að á Norðurlöndum ríkir mikil samstaða um að öflugt borgarasamfélag er forsenda virks lýðræðis. Og það hefur sjaldan verið mikilvægara en nú að efla lýðræðið í löndunum okkar.
Öll svið samfélagsins
Demos styður verkefni og tengslanet þar sem aðilar borgarasamfélagsins mætast, tengjast og vinna saman. Styrkir eru veittir til flestra tegunda samstarfsverkefna á öllum sviðum samfélagsins. Þetta geta verið verkefni, vinnustofur, ráðstefnur, fundir, vörur eða starfsmannaskipti. Mikilvægt er að samstarfsaðilar frá að minnsta kosti þremur Norðurlöndum taki þátt í verkefninu og að almannasamtök sem ekki eru rekin í hagnaðarskyni standi að baki umsókninni. Hvert verkefni getur fengið allt að 50.000 EUR í styrk sem er notaður yfir að hámarki tveggja ára tímabil.
Fyrsta umsóknartímabil ársins er frá 12. febrúar til 12. mars. Annað umsóknartímabil ársins verður frá 11. ágúst til 11. september 2026.