Norrænu orkumálaráðherrarnir vilja aukið samstarf á raforkumarkaði

13.05.25 | Fréttir
Ljósmyndari
Norden
Norrænu löndin hafa áratugum saman átt í nánu og traustu samstarfi á raforkumarkaði á grundvelli sameiginlegra gilda og markmiða. Nú vilja norrænu orkumálaráðherrarnir treysta þetta samstarf enn frekar til að tryggja stöðuga, samkeppnishæfa og áreiðanlega orkuöflun fyrir almenning og fyrirtæki á Norðurlöndum og í Evrópu.

 „Norræni raforkumarkaðurinn er burðarstoð í grænu umskiptunum. Hátt raforkurverð og sveiflur í raforkuframleiðslu geta ógnað samkeppnishæfni og afhendingaröryggi í Evrópu. Norrænt samstarf gerir okkur kleift að nýta orkuauðlindirnar á sem skilvirkastan hátt og tryggja afhendingaröryggi og styrkja samkeppnishæfni svæðisins,“ sagði Terje Aasland, orkumálaráðherra Noregs eftir fund hjá Norrænu ráherranefndinni þar sem orkumálaráðherrar Norðurlanda skrifuðu undir nýja yfirlýsingu um aukið raforkusamstarf á Norðurlöndum og í Evrópu. Fundurinn var haldinn í Varsjá í tengslum við fund orkumálaráðherra Evrópusambandsríkjanna.

Skilvirkt og grænt raforkukerfi

Norrænn raforkumarkaður leikur mikilvægt hlutverk þegar kemur að nýtingu orkuauðlinda á svæðinu og skiptir sköpum fyrir grænu umskiptin sem tryggja eiga að norrænu löndin nái háleitum loftslagsmarkmiðum sínum. Ráðherrarnir undirstrika að það sé lykilatriði að viðhalda og þróa raforkumarkað sem byggist á meginreglunni um skilvirka nýtingu auðlinda, til hagsbóta fyrir almenning og atvinnulífið.

Saman erum við sterkari – ekki aðeins á Norðulöndum heldur í Evrópu allri

Orkumálaráðherrar Norðurlanda

Mikilvægur hluti af evrópska orkukerfinu

Með nánu samstarfi hafa norrænu löndin byggt upp öflugan og virkan markað sem önnur lönd í Evrópu líta nú til. Á síðustu árum hefur komið í ljós hversu viðkvæmur orkumarkaðurinn getur verið. Utanaðkomandi þættir á borð við veðurháða raforkuframleiðslu, geópólitísk átök og óstöðugt gasframboð hafa valdið miklum sveiflum á raforkuverði. Ekki aðeins á Norðurlöndum heldur einnig í Evrópu. Norrænt samstarf hefur nefnilega ekki aðeins þýðingu á Norðurlöndum heldur skiptir það einnig máli fyrir sameiginlegan evrópskan orkumarkað. Þess vegna vilja norrænu ráðherrarnir einnig vinna að sameiginlegum norrænum hagsmunum á vettvangi ESB og stuðla markvisst að þróun evrópsks orkukerfis sem samræmir afhendingaröryggi, sjálfbærni og samkeppnishæfni.

Sameiginleg yfirlýsing norrænu orkumálaráðherranna

Rík hefð er fyrir norrænu samstarfi á sviði raforkumarkaðar grundvelli sameiginlegra gilda og markmiða um að tryggja virkt, samkeppnishæft og traust orkukerfi á svæðinu. Við, orkumálaráðherrar norrænu landanna, viljum efla hið góða samstarf okkar til að tryggja virkan norrænan raforkumarkað með stöðugu og samkeppnishæfu raforkuverði til heimila og atvinnulífsins.

Skilvirkt raforkukerfi
Norrænn raforkumarkaður leikur mikilvægt hlutverk þegar kemur að nýtingu orkuauðlinda okkar, grænum umskiptum sem þarf til að norrænu löndin nái loftslagsmarkmiðum sínum og afhendingaröryggi.Við höfum byggt upp öflugan og virkan markað sem kemur bæði heimilum og atvinnulífi til góða. Norræni raforkumarkaðurinn hefur þannig verið fyrirmynd annars staðar í Evrópu.

Samstarfið stuðlar að góðri nýtingu sameiginlegra orkuauðlinda okkar á svæðinu. Það skiptir sköpum að viðhalda og þróa virkan raforkumarkað sem byggist á meginreglunni um skilvirka nýtingu auðlinda, til hagsbóta fyrir alla.

Veikleikar
Raforkuframboð er þó viðkvæmt fyrir utanaðkomandi þáttum sem geta leitt til hás og sveiflukennds raforkuverðs. Umskipti yfir í endurnýjanlegra og veðurháðara orkukerfi, ásamt innrás Rússlands í Úkraínu og áhrifum hennar á gasframboð, hafa áfram áhrif á orkumarkaðina. Þessar áskoranir undirstrika mikilvægi áframhaldandi samstarfs og markvissra aðgerða til að tryggja stöðugleika og fyrirsjáanleika. Mikilvægt er að norræn iðnfyrirtæki haldi samkeppnishæfni sinni og að neytendur verði ekki fyrir öfgakenndum sveiflum í raforkuverði.

Markmið
Í tengslum við náið orkusamstarf okkar munum við, orkumálaráðherrar norrænu landanna, efla samstarfið til að tryggja stöðugt og samkeppnishæft raforkuverð fyrir heimili og atvinnulíf. Jafnframt skuldbindum við okkur til að halda uppi miklu afhendingaröryggi á svæðinu öllu.

Evrópsk vídd
Aukið samstarf okkar mun einnig hafa evrópska vídd þar sem við vinnum saman að því að gæta norrænna hagsmuna á evrópska orkumarkaðnum. Með samstarfinu getum við stuðlað að öflugu evrópsku orkukerfi þar sem öryggi, sjálfbærni og samkeppnishæfni fara saman.