EXPO 2025: Japan horfir til vetnis og annarra norrænna orkulausna
Í Japan er ör þróun og stöðugt leitað að nýjum orkulausnum til að mæta eftirspurn í landinu sem er fimmta stærsta hagkerfi heims. Hér gæti hlutur norrænna fyrirtækja verið stærri. Ekki síst á sviði grænnar orku. Þess vegna var hinn nýafstaðni Energy Day fjölsóttur af núverandi og mögulegum framtíðarviðskiptafélögum. Þeim var veitt innsýn í orkulausnir fjölmargra norrænna fyrirtækja. Og í verkefnið Nordic Hydrogen Valleys sem Klaus Skytte, framkvæmdastjóri Norrænna orkurannsókna, kynnti.
Þegar kemur að forystu í grænum umskiptum hafa Norðurlönd sérstöðu vegna innleiðingar vetnis í orkukerfið og með því að stuðla að hreinu vetnishagkerfi. Ég sé mikil tækifæri í auknu samstarfi milli norrænu landanna og Japans á þessu sviði og getur það ráðið úrslitum um að ná loftslagsmarkmiðum okkar. Vetni tengir endurnýjanlega orku og sjálfa notendurna og eru innviðir og samþætting fagsviða þar með talin. Þróun virðiskeðjunnar í heild er lykillinn að grænum umskiptum. Þess vegna bind ég vonir við að kortlagning norrænna vetnissviða muni sýna styrk norræns samstafs og efla samlegðaráhrif með japönskum aðgerðum.
Tækifæri í vetni
Áhersluatriði kynningarinnar á Nordic Hydrogen Valleys var að vetni getur orðið mikilvægur orkugjafi þegar kemur að því að hætta losun koldíoxíðs í orkufrekum iðnaði og flutningum. Þetta atriði er sameiginlegt, hvort heldur sem er í Ósló eða Osaka – eða á einhverjum enn öðrum stað í heiminum. Skýrsla Norrænna orkurannsókna, Nordic Hydrogen Valleys, býður upp á umfangsmikla kortlagningu norrænna vetnisvirðiskeðja ásamt yfirsýn yfir stöðu norrænna vetnisverkefna. Kortlagningin birtist í gagnvirku stafrænu verkfæri sem veitir notendum yfirsýn yfir þá þróun sem á sér stað og innleiðingu norrænna vetnisvirðiskeðja. Það gefur ráðamönnum, fjárfestum og samfélaginu í heild traustan grundvöll undir upplýstar ákvarðanir, byggðar á þekkingu, um hreint vetni.
Samnorrænt verkefni um samkeppnishæf Norðurlönd
Norræna ráðherranefndin stendur að baki Nordic Energy Day í nánu samstarfi við atvinnuþróunarsamtök þeirra Norðurlanda sem þátt tóku. Norræna ráðherranefndin er aðili að norræna skálanum á EXPO í þeim tilgangi að viðhalda og efla samkeppnishæfni Norðurlanda sem svæðis. Energy DAY var annar sameiginlegi norræni þemadagurinn sem Norræna ráðherranefndin stóð fyrir á EXPO 2025. Á næstu mánuðum verður boðið upp á norræna þemadaga, meðal annars um heilbrigðistækni, bókmenntir, jafnrétti, byggðamál og norðurslóðir.