COP29 – mikilvægt hlutverk endurnýjanlegrar orku

15.11.24 | Fréttir
Tinne Van der Straeten at COP29
Ljósmyndari
Andreas Omvik/norden.org
Eitt meginumfjöllunarefnið á COP29 sem fer fram í Bakú í Aserbaídsjan í ár er hvernig útfæra má loftlagsaðgerðir á heimsvísu. Þess vegna er markmið Norræna orkurannsókna fyrir COP29 að vekja athygli á nýstárlegum lausnum frá svæðinu og með ýmsum viðburðum stuðla að loftlagsaðgerðum sem drifnar eru áfram af rannsóknum.

Norrænar orkurannsóknir stóðu ásamt Alþjóðaorkumálastofnuninni fyrir pallborðsumræðum sem ætlað var að miðla þekkingu um samhæfi sólar- og vindorku við orkukerfi. Á viðburðinum komu saman stefnumótunaraðilar, sérfræðingar og samtök til þess að ræða áskoranir og alþjóðlegar lausnir með sérstaka áherslu á það að efla samvinnu, móta stefnumótandi tillögur og nýta loftslagsfjármögnun.

Hvað varðar aðgang að auðlindum jarðar þurfum við einnig að taka mið af landfræðipólitík

Tinne van der Straeten, orkumálráðherra Belgíu

Hér má fylgjast með útsendingu frá viðburðinum á COP29

Viðnámsþolið orkukerfi

Á viðburðinum benti orkumálaráðherra Belgíu, Tinne van der Straeten, á mikilvægi þess að nýta vind- og sólarorku með tilliti til viðnámsþróttar orkukerfanna: 


„Um allan heim höfum við næga sól og nægan vind og í dag höfum við tækifæri til þess að fanga hvern einasta geisla sólarinnar og hverja einustu hviðu vindsins. Og takist okkur að gera það getum við séð heiminum fyrir viðnámsþolnu orkukerfi. 

Ráðherrann vakti einnig athygli á mikilvægi þess að verða ekki of háð fáum:


„Það gerðist með jarðefnaeldsneyti, þegar við vorum háð fáum löndum og tókum ekki tillit til sjónarmiða landfræðipólitíkur og stöðugleika. Hvað varðar aðgang að auðlindum jarðar þurfum við einnig að taka mið af landfræðipólitík, sagði orkumálaráðherrann Tinne Van der Straeten.

Norrænu löndin geta miðlað af reynslu sinni

Endurnýjanleg orka, sérstaklega sólarorka og vindorka, gegna mikilvægu hlutverki þegar tekist er á við loftlagsbreytingar. Hins vegar sýna nýlegar rannsóknir að munurinn á upptöku endurnýjanlegrar orku milli auðugra og tekjulágra landa er orðinn skýr. Þess vegna voru mikilvæg málefni á viðburðinum þekkingarmiðlun og að tryggja samþættingu sólarorku og vindorku á heimsvísu. Kevin Johnsen, yfirmaður daglegs reksturs Norrænna orkurannsókna, hóf umræðurnar á því að ræða tækifærið sem við höfum á því að læra af hvort öðru:

„Í flestum heimshlutum er óplægður akur þegar kemur að því að bættri hönnun orkumarkaða, einkum sveigjanlegra markaða, með það fyrir augum að auka samhæfi við sólar- og vindorku, og á þessu sviði geta önnur ríki heims lært af norrænu löndunum,“ sagði Kevin Johnsen, yfirmaður daglegs reksturs Norrænna orkurannsókna. Diego Hevia-Koch, deildarstjóri samþættingar endurnýjanlegrar orku og öruggrar raforku hjá Alþjóðaorkumálastofnuninni, vakti athygli á mikilvægi þess að miðla þekkingu um kerfi sem eru langt komin. 

„Við ættum að nýta okkur það sem gert hefur verið í öðrum löndum og orkukerfum svo við getum endurtekið það og lært af því þegar kemur að orkukerfum þar sem verið er að hefjast handa við innleiðingu endurnýjanlegrar orku,“ sagði Diego Hevia-Koch.

Umræðunum lauk á skilaboðum frá þátttakendunum til stjórnmálamanna um að opna fyrir fjárfestingar einkaaðila og straumlínulaga stefnuna og um leið hafa endanlegu vöruna í huga.

Við ættum að nýta okkur það sem gert hefur verið í öðrum löndum og orkukerfum svo við getum endurtekið það og lært af því þegar kemur að orkukerfum þar sem verið er að hefjast handa við innleiðingu endurnýjanlegrar orku.

Pablo Hevia-Koch, deildarstjóri samþættingar endurnýjanlegrar orku og öruggrar raforku hjá Alþjóðaorkumálastofnuninni

Skilaboð þátttakenda til ráðmanna voru skýr í lok umræðnanna: það þarf að opna kerfin fyrir einkafjárfestingum, einfalda reglur og halda skýrri sýn á endanlegt markmið orkukerfanna.

Á orkudeginum í norræna skálanum komu saman stefnumótunaraðilar, sérfræðingar og samtök til þess að ræða áskoranir og alþjóðlegar lausnir með sérstaka áherslu á það að efla samvinnu, móta stefnumótandi tillögur og nýta loftslagsfjármögnun fyrir raforkukerfi, sem er lykilþáttur í því að minnka styrk kolefnis í andrúmsloftinu.

Norrænar orkurannsóknir

Norræna orkurannsóknir eru norræn stofnun um sameiginlegar orkurannsóknir og stefnumótun byggða á rannsóknum, á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar Þær voru stofnaðar árið 1975 sem sameiginlegt orkurannsóknarverkefni. Í dag fjármagnar stofnunin rannsóknir sem þjóna samnorrænum hagsmunum og stuðla að því að draga úr losun kolefnis og notkun jarðefnaeldsneytis og skapa nýjar vaxtargreinar með því að auka þekkingu á sjálfbærri orku og stuðla að þróun nýrra og samkeppnishæfra orkulausna.