Nú hefjast lýðræðisleg samtöl sumarsins á milli almennings og stjórnmálamanna
Í ár tekur Norræna ráðherranefndin þátt í lýðræðishátíðum í Danmörku, Finnlandi, Noregi, Svíþjóð, Eistlandi, Lettland og Litháen. Hægt er að fylgjast með umræðum á staðnum í norrænu tjöldunum eða völdum viðurðum á netinu. Alls munu um 400 stjórnmálamenn, fulltrúar einkageirans og borgarasamfélagsins, álitsgjafar, sérfræðingar, fulltrúar ungs fólks o.fl. taka þátt, hver og einn með sína sýn á virði norræns samstarfs. Allir tilbúnir í lýðræðislegt samtal og skoðanaskipti.
Samfélagsöryggi er forgangsmál
Nýr veruleiki og óvissutímar kalla á samstarf á nýjum vettvangi og nýjar tengingar á milli aðila. Samfélagsöryggi og viðbúnaður eru mikilvæg málefni fyrir ríkisstjórnir allra norrænu og baltnesku landanna. Samfélagsöryggi snýst um getu samfélagsins til að halda uppi mikilvægri starfsemi og afhendingaröryggi ásamt því að vernda líf, heilsu og grundvallargildi íbúa. Þar sem áskoranir tengdar samfélagsöryggi ná oft þvert á landamæri er til mikils að vinna með norrænu, evrópsku og alþjóðlegu samstarfi. Norræna ráðherranefndin gegnir einstöku hlutverki í samstarfi norrænu landanna í viðbúnaðarmálum, bæði sem formlegur og óformlegur milliliður og sem vettvangur til að vinna að sameiginlegum pólitískum áhersluatriðum og móta norræna stefnu.
Við munum berjast fyrir lýðræðislegum gildum
Norðurlönd byggja á sterkri lýðræðishefð, skilvirku réttarríki, víðtæku jafnrétti, frjálsum og óháðum fjölmiðlum og háu almennu upplýsingarstigi. Sköpum skiptir að standa vörð um þetta og efla á tímum þegar norræn grundvallargildi eiga undir högg að sækja. Við viljum tryggja auðugt menningarsamstarf þar sem aðgengi að norrænni menningu og menningararfi eflir samheldni, inngildingu og fjölbreytileika. Um leið eiga menntakerfi okkar að efla lýðræðislega hæfni og stuðla að háu þekkingarstigi, gagnrýnni hugsun og uppbyggjandi skoðanaskiptum. Við munum vinna saman að því að allir Norðurlandabúar hafi tækifæri og forsendur til þess að taka þátt í samfélaginu, jafnt í raunheimum sem netheimum, án mismununar af nokkru tagi.