Ný von um betri norræna skattasamninga

31.10.24 | Fréttir
Kjell Arne Ottosson
Ljósmyndari
Magnus Fröderberg/norden.org
Norrænu ríkisstjórnirnar tala mikið um norrænt samstarf en gleyma oft borgurunum í framkvæmd samstarfsins. Þetta er skoðun Norrænu hagvaxtar- og þróunarnefndarinnar. Hún hefur kallað eftir einfaldari skattasamningi sem gildir á öllum Norðurlöndum. Nú hefur verið hlustað á hana, að hluta til.

Í dag eru margir tvísköttunarsamningar í gildi en enginn einn samningur gildir um öll Norðurlöndin. Það þýðir að norrænir borgarar njóta ekki allir sömu réttinda og tækifæra. 

Norðurlandaráð fjármagnaði því skýrsluna „Frjáls för vinnuafls á Norðurlöndum – tillaga að einföldun norrænna skattareglna með áherslu á aukinn hreyfanleika“.

Í skýrslunni er eindregið mælt með því að sameina núgildandi tvísköttunarsamningana þrjá, einfalda þá og gera gildandi fyrir Norðurlönd í heild sinni. Einn slíkur samningur eigi að gilda fyrir borgara, fyrirtæki og stofnanir.

Norðurlandaráð beindi á grundvelli skýrslunnar svonefndum tilmælum til norrænu fjármálaráðherranna, en viðbrögðin við þeim voru dræm. Þess vegna telur Kjell-Arne Ottosson, formaður Norrænu hagvaxtar- og þróunarnefndarinnar, að samstarfsráðherrarnir verði að koma að málinu.

„Út frá þeim svörum sem við höfum fengið hingað til er aðeins hægt að fullyrða að ekki hefur verið mikill vilji meðal norrænu fjármálaráðherranna til að taka áskoranir fyrir borgara og fyrirtæki alvarlega. Ekki hefur verið hlustað á ósk okkar um samnorrænan skattasamning,“ segir Ottosson.

Á þingi Norðurlandaráðs í Reykjavík lagði Norræna ráðherranefndin fram samstarfsáætlanir næsta fimm ára tímabils. Í þeim kemur fram að samstarfsráðherrarnir skulu reglulega ákveða hvaða þrjú stóru vandamál ríkisstjórnirnar skuli vinna að því að leysa. Ottosson vildi fá að vita hvort samstarfsráðherrarnir teldu skatta vera slíkt vandamál. Það var norski samstarfsráðherrann Anne Beathe Kristiansen Tvinnereim sem svaraði.

„Erfiðustu stjórnsýsluhindranirnar eru leystar síðast og skattatengdar stjórnsýsluhindranir eru þær erfiðustu. Nú höfum við fengið nýja samstarfsáætlun fyrir næstu fimm ár sem á að leiða að aukins átaks í stjórnsýsluhindranatarfinu. Svo að svarið við spurningunni um hvort áhersla verði lögð á skatta er já. Það er vegna þess að bæði skýrslan sem vísað er til og stjórnsýsluhindranaráðið hafa lagt áherslu á að þetta sé meðal mikilvægustu stjórnsýsluhindrananna,“ sagði Tvinnereim.

Nú höfum við fengið nýja samstarfsáætlun fyrir næstu fimm ár sem á að leiða að aukins átaks í stjórnsýsluhindranatarfinu. Svo að svarið við spurningunni um hvort áhersla verði lögð á skatta er já.

Anne Beathe Kristiansen Tvinnereim

Svarið gladdi Kjell-Arne Ottosson, en hann vill halda áfram að beita þrýstingi. 

„Svarið var í takt við það sem mátti búast við um svo mikilvægt málefni, og gekk jafnvel lengra en við þorðum að vona. Það er mikilvægt að Norðurlandaráð fylgi eftir þessu jákvæða svari norska samstarfsráðherrans og þrýsti á þær ríkisstjórnir sem streitast gegn framförum þegar við rekumst á vandamal. Við skuldum borgurunum það, ekki aðeins á landamærasvæðum, heldur Norðurlöndum öllum,“ sagði Ottosson að lokum.