Nýr samstarfssamningur styrkir rödd ungs fólks í Norðurlandaráði

14.01.26 | Fréttir
Två personer undertecknar ett dokument framför de nordiska flaggorna

 Alexander Winge (UNR) och Heléne Björklund (NR) undertecknar det nya samarbetsavtalet.

 

Ljósmyndari
Miriam Andrea Fottland/norden.org

Alexander Winge frá Norðurlandaráði ungmenna og Heléne Björklund frá Norðurlandaráði skrifuðu undir nýja samninginn í Reykjavík.

 

Norðurlandaráð og Norðurlandaráð ungmenna hafa undirritað nýjan samstarfssamning sem kveður á um og styrkir formlegt samstarf stofnananna tveggja. Samningurinn markar sögulegan áfanga fyrir Norðurlandaráð ungmenna og var undirritaður í tengslum við fund forsætisnefndar Norðurlandaráðs í Reykjavík í desember.

Samstarfssamningurinn er gerður skömmu eftir að Norðulandaráð ungmenna varð sjálfstæður lögaðili með skrifstofu í Helsinki þann 1. janúar 2025. Ákvörðunin um að setja á fót sjálfstæða stofnun var tekin einróma á þingi Norðurlandaráðs ungmenna þann 26. október 2024, að lokinni eins árs úttekt á því hvernig aukið umboð geti eflt áhrif ungs fólks í norrænu samstarfi.

Þessi samningur er mikilvæg viðurkenning á hlutverki Norðurlandaráð ungmenna sem sameiginlegrar raddar ungs fólks á Norðurlöndum. Nú stígum við næsta skref í að tryggja langtíma og skipulagt samstarf við Norðurlandaráð.

Arvid Karell, nýkjörinn forseti Norðurlandaráðs ungmenna

Vettvangur fyrir pólitíska fulltrúa ungs fólks á Norðurlöndum

Í nýja samningnum er kveðið á um að Norðurlandaráð ungmenna hafi rétt til að taka þátt í fundum forsætisnefndar og fagnefnda Norðurlandaráðs með málfrelsi en án atkvæðisréttar. Norðurlandaráð ungmenna fær sérstaka dagskrárliði og tækifæri á að leggja fram tillögur og yfirlýsingar bæði í nefndum og forsætisnefnd. Á árlegum þingum Norðurlandaráðs er Norðurlandaráði ungmenna boðið að taka þátt í almennum umræðum og koma sjónarmiðum ungs fólks á framfæri.

 

Samningurinn kveður einnig á um fjárhagslegar forsendur samstarfsins. Norðurlandaráð ungmenna fær árlega fjárveitingu frá Norðurlandaráði til að styðja við starfsemi samtakanna, þar á meðal þátttöku í fundum, árlegt þing Norðurlandaráðs ungmenna, og annan fastan kostnað sem tengist samstarfinu. Norðurlandaráð ungmenna skal árlega skila skýrslu um starfsemi sína og fjárhag til Norðurlandaráðs.

 

Norðurlandaráð ungmenna hefur frá stofnun árið 1971 unnið að því að efla áhrif ungs fólks í norrænu samstarfi og hefur lengi átt sess í starfi Norðurlandaráðs. Stofnunin sameinar stjórnmálahreyfingar ungmenna frá öllum Norðurlöndum og skapar vettvang fyrir hugmyndaskipti, stefnumótun og hagsmunagæslu ungs fólks á norrænum vettvangi.

 

Nýi samstarfssamningurinn, sem tók gildi 9. desember 2025, skal endurskoðaður árlega og geta báðir aðilar sagt honum upp með tólf mánaða fyrirvara. Með samningnum er hlutverk Norðurlandaráðs ungmenna sem fasts og mikilvægs samstarfsaðila í norrænu stjórnmálasamstarfi staðfest og rödd ungs fólks fær þar með enn skýrara vægi þegar teknar eru ákvarðanir um norræn málefni.