Öryggis- og viðbúnaðarmál verða meginþemað á þemaþingi Norðurlandaráðs í Helsinki
Norðurlandaráð í þingsal finnska þinghússins á Norðurlandráðsþinginu í Helsingi 2022.
Þema þingsins í ár er Stöndum sterkari saman – nýtt skeið norræns samstarfs um öryggis- og viðbúnaðarmál og munu umræðurnar fjalla um það hvernig norrænu löndin geta eflt varnir sínar, almannavarnir og viðnámsþrótt gagnvart ógnum og upplýsingaóreiðu.
Aukin áhersla á öryggismál á Norðurlöndum
Á undanförnum árum hefur staða öryggismála í Evrópu orðið flóknari. Úkraína berst fyrir alla álfuna og að sögn dönsku leyniþjónustunnar er aukin hætta á stórfelldu stríði í Evrópu á næstu árum. Norrænu löndin mega nú þegar þola fjölþættar árásir í formi upplýsingaóreiðuherferða og árása á mikilvæga inniviði, svo sem rof á sæstrengjum í Eystrasalti.
Því er nauðsynlegt að efla norrænt samstarf, bæði innan Norðurlanda og í samstarfi við Eystrasaltsríkin, ESB, NATO og aðra aðila. Um það munu norrænir þingmenn ræða sín á milli á þemaþingi ársins.
Alexander Stubb og Carl-Oskar Bohlin taka þátt í umræðunum
Alexander Stubb, forseti Finnlands, verður aðalræðumaður í umræðunum. Stubb hefur lengi talað fyrir auknu norrænu samstarfi í öryggismálum og öflugri evrópskri stefnu í varnarmálum. Carl-Oskar Bohlin, almannavarnaráðherra Svíþjóðar, tekur einnig þátt í umræðunum og mun beina sjónum að því hvernig Norðurlönd geti staðið þéttar saman á tímum þegar ógnir steðja í ríkari mæli að.
Fylgist með þemaþinginu í beinni
Þemaþingi Norðurlandaráðs verður streymt beint á norden.org þar sem hægt verður að fylgjast með umræðum um öryggis- og viðbúnaðarmál á Norðurlöndum.