Samhljómur á milli alþjóðasamninga í fókus á fundi ráðherra loftlags- og umhverfismála
Sveriges klimat- och miljöminister Romina Pourmokhtari.
Ráðherrarnir lýstu yfir mikilvægi skýrra sameiginlegra skilaboða frá Norðurlöndum í tengslum við alþjóðlegar viðræður. Síðastliðin ár hafa Norðurlönd unnið með virkum hætti að því að tryggja lagalega bindandi alþjóðasamning um plastmengun. Samstaða ríkir um að við þurfum að gera allt til að gerður verði samningur, sem einnig nær til örplasts, þegar samningsaðilarnir funda í Busan í Suður-Kóreu eftir nokkrar vikur.
Hvað varðar þær viðræður sem nú standa yfir á COP29 í Bakú eru ráðherrarnir sammála um að mikilvægt sé að halda dampi fram yfir COP30 árið 2025, þar á meðal með því að hvetja samningsaðilana til að kynna metnaðarfull landsákvörðuð framlög sem uppfylla Parísarsamninginn og 1,5 gráðu markmiðið. Norræna ráðherranefndin er á staðnum í Bakú með skála þar sem kynntar eru norrænar lausnir við alþjóðlegum loftlagsáskorunum.
Við getum sýnt fram á árangursríkar lausnir sem sýna hvernig umskiptin efla samkeppnishæfni og stuðla þar með einnig að hagvexti og velferð.
Loftslags- og umhverfisráðherra Svíþjóðar, Romina Pourmokhtari: „Rödd sameinaðra Norðurlanda er sterk og mikilvæg í alþjóðlegum viðræðum um loftlags- og umhverfismál. Við getum sýnt fram á árangursríkar lausnir sem sýna hvernig umskiptin efla samkeppnishæfni og stuðla þar með einnig að hagvexti og velferð. Svæðið okkar getur aðeins verið öðrum löndum hvatning með því að vera fyrirmynd sem er eftirsóknarvert að líkjast.“
Mengunarbrot og efnalöggjöf ESB
Á fundinum var kynnt ný skýrsla um mengunarbrot, sem vakti mikinn áhuga, og ræddu ráðherrarnir einnig möguleika á norrænu samstarfi í tengslum við yfirstandandi endurskoðun REACH-reglugerðar ESB. Mikil samstaða ríkti um að norrænu löndin geti og eigi að hafa áhrif á efnalöggjöf ESB í sameiningu.
Hnattrænn vandi tengdur við norrænt samstarf
Í haust var nýr samstarfsáætlun ráðherranna fyrir tímabilið 2025-2030 samþykkt. Héðan í verða allar aðgerðir í norrænu loftslags- og umhverfissamstarfi tengdar hinum þríþætta hnattræna vanda.
Romina Pourmokhtari, loftslags- og umhverfisráðherra Svíþjóðar: „Sem formaður í ferlinu er ég afar ánægð að loftlagsmál, líffjölbreytni, mengun og hringrásarhagkerfi verði í brennidepli norræns loftlags- og umhverfissamstarfs næstu sex árin.“
Skýrslan „Supervision to combat waste crime“, sem var kynnt fyrir ráðherrunum, kemur út í lok árs.